152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

samspil verðbólgu og vaxta.

[11:38]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Undanfarnar vikur og mánuði höfum við séð stjarnfræðilegar hækkanir á húsnæðisverði sem hefur veruleg áhrif á vísitölu neysluverðs. Í lok janúar hafði húsnæðisverð hækkað um 1,7% bara á einum mánuði. Árshækkunartakturinn er kominn í rúm 20%. Það liggur fyrir að þörfin á viðbrögðum er aðkallandi. Það eru blikur á lofti, það er komið stríð í Evrópu og það hefur gífurleg áhrif á verðbólgu hér á landi og erlendis. Verðbólgan sýnir okkur hversu mikið verð á neysluvöru og þjónustu sem heimili landsins neyta hafa hækkað í verði miðað við sama mánuð ári fyrr. Hagstofan mælir þetta út frá vísitölu neysluverðs, en þar fær hver vöruflokkur mismikið vægi eftir því hversu stór hluti hann er af útgjöldum heimilanna. Langmestu máli skiptir húsnæðisliðurinn, sem mælir kostnaðinn við að búa í eigin húsnæði, en hann er um þriðjungur vísitölunnar og því mesti áhrifavaldurinn á vexti hér á landi.

Í útreikningi húsnæðisliðarins er húsnæðisverð, leiguverð, viðhald, rafmagn og fleira tekið inn í jöfnuna. Húsnæðiskostnaðurinn er þar á meðal. Það sem við þurfum að huga að er að húsnæðisliðurinn er ekki eins mældur í samræmdu vísitölunni og þeirri íslensku. Munurinn liggur í því að notuð er greidd húsaleiga ásamt öðrum kostnaði sem lýtur að húsnæði í samræmdu vísitölunni en í þeirri íslensku er notuð greidd húsaleiga ásamt reiknaðri húsaleigu.

Virðulegur forseti. Þegar verðbólguhorfur hafa versnað umtalsvert þá hafa þær ákvarðanir sem teknar eru hér í þessum sal gífurleg áhrif á efnahagslífið, eðli málsins samkvæmt, og það er mikilvægt að við setjum tóninn. En viðbrögðin eiga ekki að byrja eða enda hér heldur þurfum við að fá fleiri í lið með okkur til að tempra ástandið. Við þurfum að fara að hugsa málið öðruvísi og hugsa reikningsdæmið öðruvísi. Og nú þegar höfum við í Framsókn lagt fram tillögur að lausnum um hvernig við getum gefið sanngjarnari mynd af vísitölunni og þar með verðbólgunni. Og hvernig væri það að forstjóri Hagstofunnar myndi koma með okkur í þá vegferð sem fram undan er og fara að hugsa í lausnum?