samspil verðbólgu og vaxta.
Virðulegi forseti. Málshefjandi þessarar umræðu vísar til hrunsins og veltir fyrir sér því hvaða lærdóm núverandi ríkisstjórn hyggist draga af þeim tíma í ljósi stýrivaxtabreytinga. Í þessu samhengi er mikilvægt að hafa í huga að lækkun stýrivaxta kom einmitt til sem hluti af efnahagsaðgerðum stjórnvalda í kjölfar Covid og stýrivextir nú eru þar sem þeir voru fyrir faraldurinn, líkt og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kom inn á í framsögu sinni. Lágt vaxtaumhverfi hafði áhrif á húsnæðismarkaðinn en á seinni hluta ársins 2021 dró úr veðsetningu sem má tengja við þá ákvörðun fjármálastöðugleikanefndar að lækka veðsetningarhlutfall í lok júní ásamt því að hækkandi eignaverð og skortur á framboði er líklegt til að spila inn í. Við þurfum að nýta öll tæki til að sporna við aukinni verðbólgu og afleiðingum hennar. Hækkun stýrivaxta er helsta tæki Seðlabankans til að ná verðbólgumarkmiðinu. Það er líklegt að vaxtahækkunarferlið haldi áfram á þessu ári. Við vitum að það eru hópar í samfélaginu sem eru viðkvæmir fyrir þessum hækkunum og hagsmunir heimilanna verða að vera í forgangi. Það er ljóst að vaxandi hlutfall íbúðalána á breytilegum vöxtum er varhugavert og eitthvað sem við þurfum að bregðast við.
Herra forseti. Næstu árin munu þurfa einkennast af markvissum aðgerðum og stefnumótun hins opinbera til að skapa stöðugt vaxtaumhverfi og fjölbreyttari húsnæðismarkað. Það þarf að halda áfram að styrkja opinberan húsnæðismarkað með það að markmiði að tempra verðhækkanir og mæta eftirspurn. Hið opinbera stóð fyrir byggingu á 30% af öllu nýju húsnæði á síðasta kjörtímabili og þessi þróun þarf að halda áfram svo við getum vaxið út úr faraldrinum líkt og stefna ríkisstjórnarinnar kveður á um.