152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

samspil verðbólgu og vaxta.

[11:45]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég held að það sé mjög gott og nauðsynlegt atriði í þessari umræðu að skoða málið annars vegar út frá stóru myndinni og hins vegar út frá hverjum og einum einstaklingi. Ég ætla að byrja aðeins á stóru myndinni í þessu. Stóra myndin á bak við þetta allt, að mínu mati, sem við þurfum að vekja athygli á og pota dálítið mikið í er lífeyriskerfið okkar. Af hverju segi ég það? Af því að lífeyriskerfið okkar er samkvæmt vefsíðunni lífeyrismál.is 6.000 milljarðar kr. að stærð. Hvað þýðir það, sérstaklega með tilliti til þess að ávöxtunarkrafa á 6.000 milljörðum kr. eru 3,5%? Það þýðir 200 milljarða á ári sem þarf að afla í vexti til að standa undir lífeyrissjóðakerfinu. Þetta er athyglisverð tala af því að raunvirði eykst verg landsframleiðsla einungis um 100 milljarða á ári. Hvað verður þá um hina 100 milljarðana sem vantar? Þeir koma fram í verðbólgu, verðrýrnun, það er ekkert flóknara en það. Þarna er kjarninn í því sem við upplifum dagsdaglega í afborgunum af lánum o.s.frv., grunnurinn að verðbólgunni. Verðbólgan er þarna af því að við leggjum til hliðar hluta af launum okkar til þess að geta fengið þau seinna sem ráðstöfunartekjur á efri árum. En það þarf að viðhalda verðgildi þessarar innlagnar okkar til að við eigum fyrir henni þegar við komumst á efri ár, og þetta kostar hún okkur þegar allt kemur til alls. Hinn hlutinn af lífeyrissjóðakerfinu er síðan húsnæði sem allir þurfa að eignast skuldlaust áður en þeir fara á ellilífeyri. Það ætla ég að minnast aðeins á í seinni ræðunni.