samspil verðbólgu og vaxta.
Virðulegi forseti. Vandinn sem hér um ræðir er að mörgu leyti heimatilbúinn og fyrirséður. Þó að um alþjóðlegan vanda sé að ræða þá hefur fjöldi sérfræðinga líka bent á þau mistök sem gerð hafa verið í hagstjórninni. Nú eru fimm mánuðir síðan að ríkisstjórnarflokkarnir háðu sína kosningabaráttu með þeim skilaboðum að hér hafi skapast öruggt lágvaxtaumhverfi á meðan staðreyndin er sú að greiðslubyrði almennings hefur snarhækkað á síðustu vikum og mánuðum og mun hækka á komandi tímum.
Síðan hefur verið sagt þessu til varnar að í sögulegu samhengi séu vextir lágir. Það skiptir bara engu. Það er engin huggun harmi gegn fyrir alla þá húsnæðiskaupendur þar sem lánin hafa hækkað um tugi þúsunda. Það skiptir heldur engu að miða við einhver verbúðarár því að þetta er allt til heimabrúks. Samkeppnishæfi Íslands og íslensks atvinnulífs fer eftir því hver staða okkar er og samkeppnisstaða við útlönd, ekki hér innan lands. Hver er vaxtamunurinn við útlönd? Hann auðveldar ekki íslenskum fyrirtækjum umhverfið. Þannig að vaxtakostnaður af skuldum ríkissjóðs mun hækka og er nú þegar fimmti stærsti útgjaldaliðurinn. Á sama tíma sitjum við uppi með alls konar aukinn kostnað, m.a. vegna fjölda ráðuneyta, af því að það treystir sér enginn til að forgangsraða fjármunum ríkissjóðs.
Það þema sem við sjáum hér kallast því réttilega ábyrgðarleysi og aðhaldsleysi. Ríkisstjórnin hefur aukið þensluna og aukið útgjöld til að láta ráðherrakapalinn ganga upp, en hefur síðan ekki manndóm í sér til að klára ýmis grundvallarprinsippmál eins og niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Samtök atvinnulífsins segja stjórnvöld varpa ábyrgð á algerlega ósjálfbærum ríkissjóði og skuldum hans á næstu ríkisstjórn og ríkisstjórnin svarar síðan ekki þeim skilaboðum frá seðlabankastjóra sem sagði skýrt á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun að það þurfi að eyða hallanum, að ríkið verði að eyða minni pening og draga sig til baka. Við blasi annaðhvort skattahækkanir eða að dregið verði úr ríkisútgjöldum.
Forseti. Ég kalla eftir skýrum svörum frá stjórnvöldum um næstu skref og ætlast til þess að þau vakni til lífsins, því að staðan er grafalvarleg.