152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

samspil verðbólgu og vaxta.

[11:50]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Nú ætla ég að leyfa mér að vera rödd bjartsýninnar en nú eru uppi gerólíkar aðstæður en þær sem málshefjandi vísar til eftir hrun. Í fyrsta lagi reyndust efnahagsleg áhrif heimsfaraldursins ekki vera jafn langvinn og margir óttuðust og í öðru lagi voru viðbrögð stjórnvalda við faraldrinum til þess að efnahagsbatinn varð meiri en spár gerðu ráð fyrir. Ein helsta breytan er sú að eftir hrun var atvinnuleysi mikið en nú er skortur á vinnuafli. Þá hefur regluumhverfið tekið verulegum breytingum frá hruni til marks um einmitt það að stjórnvöld hafa lært af mistökunum í hruninu. Þessar breytingar eru bæði til hagsbóta fyrir neytendur sem og fjármálastofnanir og neytendur njóta nú betri verndar og hafa aukið frelsi til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigin fjárhag og viðskipti við fjármálastofnanir. Meðan húsnæðismarkaðurinn drífur áfram verðbólguna að mestu vegna skorts á framboðshliðinni hefur Seðlabankinn fáa aðra kosti en að hækka stýrivexti og er fullt tilefni til þess að beita áfram öðrum þjóðhagsvarúðartækjum. Þær aðgerðir sem gripið er til hér á þinginu mega ekki ýta undir þrýsting á eftirspurnarhliðinni eins og sumar tillögur á þinginu munu gera.

Í þessu samhengi má ítreka að skuldir hagkerfisins eru lágar í sögulegu samhengi og þrátt fyrir skuldaaukningu heimilanna er fjárhagsstaða þeirra sterk. Það sem mun svo hafa mest áhrif á þróun verðbólgunnar eru komandi kjaraviðræður. Vinnumarkaðurinn mun spila stórt hlutverk. Laun hafa í heimsfaraldrinum hækkað verulega sem gerist ekki annars staðar í svona aðstæðum. Kjaraviðræðurnar verða að endurspegla aðstæðurnar í hagkerfinu. Að lokum: Það þarf margt að vinna saman til að viðhalda fjármálastöðugleika og til þess þurfum við öll að róa í sömu átt.