152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

samspil verðbólgu og vaxta.

[11:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Til þess að klára lífið þá þurfum við að hafa þak yfir höfuðið og ráðstöfunartekjur og til þess höfum við sett upp lífeyrissjóðakerfi sem gerir ekki ráð fyrir því að lífeyririnn geti greitt húsnæðiskostnað. Málið er það einfalt. Fólk þarf að vera búið að eignast skuldlausa íbúð ef lífeyririnn á að duga að jafnaði fyrir bara mat og þess háttar. Sá lífeyrir er einfaldlega ekki ætlaður til að greiða fyrir húsnæði. Í heildarsamhengi þess þurfa stjórnvöld að geta útskýrt hvernig fólk á lágmarkslaunum á að geta eignast húsnæði því eins og er eru framfærsluútreikningar stjórnvalda á þann hátt að þeir sem eru á lágmarkslaunum eru í mínus eftir hver mánaðamót. Þá er ekki séns að geta eignast íbúð, hvað þá þegar einfaldlega öll önnur sveitarfélög en Reykjavík byggja ekki hlutfallslega sinn hluta íbúða sem þarf miðað við þá mannfjöldaþróun sem er spáð á næstu árum og áratugum. Við erum að glíma við það akkúrat núna að það er nýbúið að uppfæra mannfjöldaspána. Hún er hærri en var búist við. Þá þarf enn fleiri íbúðir en búist var við. Í fyrri áætlunum var Reykjavík eina sveitarfélagið sem byggði nægilega mikið til að sinna þeirri þörf miðað við hlutfallslega stærð borgarinnar. Eina sveitarfélagið. Hin eru öll að svíkjast undan í þeirri eftirspurn.