152. löggjafarþing — 46. fundur,  3. mars 2022.

samspil verðbólgu og vaxta.

[12:02]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Hér hafa farið fram ágætisumræður og mörg sjónarmið hafa komið fram sem ég er að mörgu leyti sammála en öðrum ekki. En staðan er hins vegar sú hjá okkur miðað við nágranna okkar í Evrópu, að þeir þurfa ekki að reka heimili sín eins og vogunarsjóði. Þeir neyðast ekki til að spá endalaust í það hvaða áhrif vaxtabreytingar muni hafa á heimilisbókhaldið. Þeir þurfa ekki að endurfjármagna lánin sín á nokkurra ára fresti og eiga ekki á hættu að tapa tugum þúsunda á mánuði vegna skyndilegra ákvarðana seðlabankanna. Venjulegt fólk þarf ekki að hafa ígildi háskólaprófs í hagfræði til að lágmarka skaðann af sveiflukenndum gjaldmiðli.

Fullyrðingar hér í dag um að lóðaskortur í Reykjavík sé helsta orsök hækkana á fasteignaverði standast ekki. Fasteignaverð hefur hækkað um allt land og Reykjavík hefur staðið fyrir metuppbyggingu á tímabilinu, mun meira en nágrannasveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Aftur á móti hafa lægri vextir og aðgengi að lífeyrissparnaði aukið eftirspurnina á fasteignamarkaði margfalt umfram það sem verið hefur undanfarin ár. Ríkisstjórnin mætti því að líta sér nær áður en hún kennir öðrum um þessa miklu aukningu í skuldbindingum heimilanna. Það er mikið áhyggjuefni að hún hafi ráðist í þessar aðgerðir án þess að skoða möguleg áhrif þeirra. Þegar ég talaði um víxlverkun verðbólgu og vaxta minnist hæstv. fjármálaráðherra á víxlverkun launa og verðlags í sögulegu samhengi. Illu heilli var þetta tekið úr sambandi og launafólk stóð bara óvarið. Þegar verið er að skella vaxtahækkunum á skuldsett fyrirtæki óttast ég að það muni bara fara beint út í verðlagið og valda því að það þurfi áfram að hækka vexti. En að minni hyggju á hagstjórn líka að snúast um hag heimilanna og kannski fyrst og fremst. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)