mengunarslys vegna gamalla olíutanka.
Virðulegi forseti. Þær fregnir bárust mér núna í fyrradag að umhverfisslys hefði átt sér stað á Suðureyri við Súgandafjörð. Þegar betur var að gáð kom í ljós að þarna er niðurgrafinn olíutankur sem er orðinn eldgamall og farinn að leka og þarna höfðu þúsundir lítra af olíu lekið út í jarðveginn. Sambærilegt umhverfisslys átti sér stað á Hofsósi 2019. Það sem ég er að velta fyrir mér er hvort hæstv. ráðherra umhverfismála sé meðvitaður um þetta. Þá liggur kannski beinast við að velta því upp hversu mikið er af þessum olíutönkum sem eru orðnir eldgamlir og eru niðurgrafnir vítt og breitt um landið. Það er vitað um allnokkuð fleiri staði þar sem þessir tankar eru. Í sambandi við Suðureyri þá er staðreyndin sú að verið er að geyma þessa olíu þarna til þess að geta gripið inn í og aðstoðað við að kynda heimili fólks vegna þess að það skortir orku, venjulega græna raforku til þess. Mig langar til að velta því upp við hæstv. umhverfisráðherra hvort hann sé í fyrsta lagi meðvitaður um það sem er að gerast vítt og breitt um landið og hvort það sé eitthvað núna á borðinu sem gæti kannski flýtt því að þær byggðir sem sitja uppi með það að þurfa að brenna olíu til húshitunar og annars þurfi þess ekki og að þessu fari að linna og þetta fólk fái græna orku eins og við hin. Og ef svo er, hvar er það mál statt?