mengunarslys vegna gamalla olíutanka.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og fyrir að vekja athygli á þessum málum. Það þarf auðvitað ekki að hafa neitt mörg orð um það að það er alvarlegt mál ef olía lekur, eins og hv. þingmaður vísar hér til, og mikilvægt að við séum meðvituð um það og auðvitað helst að við komum í veg fyrir það þar sem þetta gerist. En út af því sem hv. þingmaður nefnir, sem er náttúrlega annað stórmál og ég hef vakið athygli á hér á hv. Alþingi, þá snýr það að því að fjarvarmaveiturnar þurfa að nýta olíu til að búa til raforku fyrir byggðirnar. Hv. þingmaður spurði hvað verið væri að gera í því. Eitt af því fyrsta sem ég setti á laggirnar í minni tíð sem ráðherra var svokallaður raforkuöryggishópur sem á m.a. að skoða þessa þætti og kemur með tillögur núna á næstu dögum eða vikum. Það sem við erum að sjá, menn bentu réttilega á það, er ekki bara varðandi þessa fjarvarmaveitur heldur sömuleiðis fiskimjölsverksmiðjurnar, að þetta er til komið út af stöðu í vatnslónum á hálendinu. En það er auðvitað ekki bara það heldur líka vegna þess að eftirspurn eftir grænni orku er að stóraukast og við hefðum þurft að gera ráðstafanir hér áður og fyrr til að sjá til þess að þessi mál væru í betri stöðu. Af því að hv. þingmaður spyr um hvar þetta mál stendur og hvenær megi vænta einhverra tillagna þá var ég einmitt á fundi með Orkumálastofnun í morgun og orkumálastjóra sem sagði mér hver staða þeirra mála væru. Þess er að vænta að við sjáum einhverjar tillögur nákvæmlega um þau mál sem hv. þingmaður vísaði til og spurði um.