152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

móttaka flóttafólks frá Úkraínu.

[15:15]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég get tekið undir margt í svari hæstv. ráðherra og það er mikilvægt að frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra klárist hér þó að það sé kannski ekki eins víðtækt til að taka á þessum vanda eins og tilefni er til. En þótt ég sé ánægður að heyra viðbrögð hæstv. ráðherra þá velti ég áfram fyrir mér: Má vænta einhverra aðgerða í samræmi við orð hæstv. ráðherra? Því að þessi ríkisstjórn hefur — á sama tíma og hún hefur ekki náð að koma í gegn því frumvarpi sem boðað hefur verið frá hæstv. dómsmálaráðherra, í þriðja skipti að ég held — lagt fram frumvarp sem gengur í þveröfuga átt og auglýsir Ísland sem áfangastað fyrir þá sem selja ferðir til flóttamanna. Nú þegar staðan er sú sem hún er í Úkraínu þá verðum við að vera í stakk búin til að taka við fólki á þeim forsendum sem lagt var upp með eftir seinni heimsstyrjöldina þegar flóttamannasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var gerður. (Forseti hringir.) En við þurfum líka að styðja við (Forseti hringir.) Pólland og önnur lönd sem eru næst Úkraínu.