152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

móttaka flóttafólks frá Úkraínu.

[15:16]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir að það væri góð nálgun að hugsa það þannig: Hvað getum við gert til þess að standa með þeim sem helst finna fyrir komu flóttafólks frá Úkraínu til sín? Hér er Pólland nefnt sérstaklega. Ég held samt sem áður að akkúrat þessa dagana þurfum við að spyrja okkur að því hvernig okkar eigið kerfi er undir það búið að taka við stórauknum fjölda flóttafólks, sérstaklega í ljósi þess að nú hefur þessi 44. gr. laganna verið virkjuð í fyrsta sinn sem þýðir efnislega að það þarf ekki að fara fram efnisleg meðferð beiðnanna heldur eru þeir sem eru flóttamenn frá Úkraínu nokkurn veginn sjálfkrafa samþykktir. Við þurfum að spyrja okkur spurninga sem tengjast atvinnuleyfunum, sem eru ein áherslubreyting sem við í þessari ríkisstjórn höfum viljað beita okkur fyrir og ég hygg að verði sérstaklega tekið fyrir í frumvarpi ráðherrans. Þannig að áður en við förum að spyrja okkur: Hvað getum við gert í Póllandi? þá held ég að við verðum að spyrja okkur: Hvað getum við gert hér og nú í okkar eigin kerfi?