152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

flýtimeðferð dvalarleyfis.

[15:18]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Sú ákvörðun hæstv. dómsmálaráðherra á dögunum að virkja 44. gr. útlendingalaga til handa flóttamönnum frá Úkraínu vakti athygli, ákvæði sem fjallar um fjöldaflótta og getur í raun flýtt fyrir málsmeðferð þannig að fólk fái ákveðið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli þeirrar krísu sem er í gangi í Úkraínu. Nú er auðvitað gott að sjá að það standi til að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu en ég velti samt fyrir mér nokkrum atriðum gagnvart þessari leið sem farin er til að taka á móti flóttafólki. Í fyrsta lagi snýr það að því að vernd á grundvelli þessa ákvæðis veitir viðkomandi flóttamönnum ekki atvinnuleyfi. Þetta er eitthvað sem er á málasviði hæstv. ráðherra, að veita atvinnuleyfi sem fæst ekki með þessu dvalarleyfi sem verið er að leggja til, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðum. Þetta víkur líka til hliðar umsókn viðkomandi einstaklinga um alþjóðlega vernd sem er töluvert sterkari réttarvernd sem flóttamenn geta fengið, felur í sér lengra dvalarleyfi, meira öryggi og atvinnuréttindi. Ég velti fyrir mér hvort þessi munur og þessi nálgun hafi verið rædd milli hæstv. dómsmálaráðherra og hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra áður en þessi ákvörðun var tekin og þær afleiðingar sem þetta mun hafa, sem eru að viðkomandi einstaklingar verða væntanlega án atvinnuleyfis hér í einhvern tíma, a.m.k. þrjá mánuði sem það tekur venjulega að fá atvinnuleyfi ef viðkomandi fær yfir höfuð atvinnurekanda til að ráða sig og bíða svo í þennan tíma þangað til atvinnuleyfi fæst. Á meðan eru viðkomandi flóttamenn væntanlega á framfærslu sveitarfélaga. Er þetta planið, virðulegi forseti? Er það planið hjá hæstv. ríkisstjórn að veita flóttafólki frá Úkraínu ekki atvinnuleyfi og veita því í raun minni vernd en það á rétt á?