flýtimeðferð dvalarleyfis.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Líkt og ég hef sagt hér áður, sem og allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar, þá er það grundvallaratriði í okkar huga að Ísland sé opið fyrir flóttafólki frá Úkraínu. Með ákvörðun dómsmálaráðherra um að virkja 44. gr. útlendingalaga þá erum við að setja í framkvæmd þann vilja okkar og þann vilja íslensku þjóðarinnar að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu. Það er vissulega munur á því að fara þessa leið eða að fara þá leið að hver og einn sæki um alþjóðlega vernd. Við í ríkisstjórninni vildum fylgja öðrum Evrópuríkjum í þeirri vegferð sem þar var ákveðið að fara í og það er sama vegferð og við erum að fara í núna á Íslandi. Það verður einfaldara að mörgu leyti að taka á móti fólki með þessum hætti, það tekur skemmri tíma. Við eigum von á miklum fjölda, eftir því sem okkur best skilst út frá því sem er að gerast bæði út í Úkraínu, í nágrannaríkjunum og því sem búist er við af yfirvöldum hér heima. Þannig að ég tel að þetta sé góð ákvörðun, að opna faðminn með þessu móti því að hér er opið fyrir fólk, hingað getur það komið. Það er ekki planið hjá ríkisstjórninni að þetta fólk geti ekki fengið atvinnu, ég skil ekki alveg hvaðan sú ályktun hv. þingmanns kemur. Það er vissulega þannig að fólk fær ekki sjálfkrafa atvinnuleyfi og það er eitt af því sem við höfum verið að leggja til í þessari ríkisstjórn og kom m.a. fram í svari hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hér áðan að er eitt af því sem við viljum breyta. Það hefur verið skýrt í langan tíma. En það er ekki planið að þetta fólk geti ekki fengið vinnu.