152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

flýtimeðferð dvalarleyfis.

[15:22]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég dreg þessa ályktun bara af gildandi lagaumhverfi á Íslandi í dag en ekki einhverjum pælingum um hvort þessari ríkisstjórn takist að koma máli í gegn sem hefur, að mér telst til, fjórum sinnum verið hafnað af Alþingi. Það er ekki út af þeirri einföldu breytingu sem hæstv. ráðherra vísar í, sem þar er að finna, heldur öllum öðrum ómannúðlegu skrefum sem eru í því frumvarpi og felast m.a. í því að taka mjög mikilvæg réttindi af flóttafólki á Íslandi, sem við styðjum ekki. Það er bara önnur umræða. Við höfum ákveðin lög sem eru í gildi og þau lög sem verið er að beita núna verða til þess að viðkomandi einstaklingar hafa ekki rétt á atvinnuleyfi nema sækja sérstaklega um það, þurfa til þess að hafa atvinnurekanda sem er tilbúinn að láta þá fá vinnu og bíða í þá þrjá mánuði sem það tekur að vinna þá umsögn. Og á meðan á fólk ekki rétt á stuðningi frá hinu opinbera nema frá sveitarfélögunum. Þess vegna spyr ég hvort til standi (Forseti hringir.) að láta fólk reiða sig á sveitarfélögin (Forseti hringir.) hvað varðar framfærslu eða hvort ráðherra ætlar að grípa til einhverra aðgerða sjálfur eða leggja eitthvað annað til en þessa leið, vegna þess að þetta er ekki besta vernd sem flóttafólk frá Úkraínu á völ á.