152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

biðlistar í heilbrigðiskerfinu.

[15:25]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Það eru liðnir 100 dagar frá stjórnarmyndun. Sporin fyrstu 100 dagana segja mikið til um á hvaða leið menn eru og hversu mikið þeim liggur á. Heilbrigðisráðherra naut þess að þurfa ekki að verja tíma í að greina stöðuna. Hún lá fyrir. Hún var slæm. Mig langar til að spyrja ráðherra út í stöðu fólks í bið eftir heilbrigðisþjónustu í ljósi stöðu Landspítalans. Þjóðarsjúkrahúsið okkar býr við endurtekið neyðarástand og það hefur afleiðingar fyrir starfsfólk spítalans. Við þekkjum sögurnar af álaginu þar. Ég spyr: Hvað hefur ráðherra gert til að mæta þessu á sínum fyrstu 100 dögum í embætti? Við þekkjum líka afleiðingarnar af stöðunni á Landspítala fyrir fólk sem þarf á þjónustu spítalans að halda. Við þekkjum biðlistana eftir svokölluðum valkvæðum aðgerðum sem á mannamáli þýða einfaldlega að fólk er ekki beinlínis í lífshættu í biðinni þótt aðgerð tefjist, en biðin hefur áhrif á líðan fólks, á lífsgæði, atvinnuþátttöku og almenna þátttöku í samfélaginu. Svo er það, herra forseti, biðin eftir greiningum. Sú bið myndar vissulega ekki formlega biðlista en hefur sömu grafalvarlegu afleiðingarnar fyrir fólk sem þarf á heilbrigðisþjónustu að halda. Mig langar að fá svör frá hæstv. ráðherra, skýr svör um það hvað hann hefur gert til að mæta þessari stöðu á sínum fyrstu 100 dögum í embætti heilbrigðisráðherra.