152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

biðlistar í heilbrigðiskerfinu.

[15:27]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir þessar spurningar. Hún vísar hér í kenninguna um 100 dagana og já, ég hef haft tök á því að greina stöðuna. Þegar við tölum um stöðu fólks í bið er klárt mál að hér í gegnum faraldurinn hefur hægst á eiginlega öllum aðgerðum. Ég hef kallað eftir því að fá biðlista frá Landspítalanum til að hafa raunverulega stöðuna í því hvað hefur gerst í samhengi við þær aðgerðir sem alla jafna eru gerðar þegar ástandið er eðlilegt, getum við sagt, hvaða kúf við þurfum að fara í gegnum. Þessi biðlisti liggur núna fyrir gagnvart öllum aðgerðum og við erum að greina þetta með góðum hópi af spítalanum og Sjúkratryggingum og öðrum sem geta gert aðgerðir en geta þó ekki gert sumar aðgerðir, ég nefni ákveðnar hjartaaðgerðir. En liðskiptaaðgerðir er hægt að gera og fleiri aðgerðir. Ég hef lagt sérstaka áherslu á legslímuflakk og fleiri aðgerðir, augnsteinaaðgerðir hafa safnast upp. Það blasir við að við þurfum að fara í átak í að vinna á þessum biðlistum og koma okkur í eðlilegt ástand í því. En um leið þurfum við að ná fram miklu meiri samvinnu í öllu kerfinu, algerlega óháð því á hvaða vettvangi menn starfa í samvinnu við spítalann þar sem meginþunginn er til þess að fólk þurfi ekki að þola meiri bið en er ásættanleg í hverju tilviki út frá meini hverju sinni.