biðlistar í heilbrigðiskerfinu.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mig langar að benda ráðherra á að nýr forstjóri Landspítala kvartaði ekki undan Covid þegar hann tók við stöðunni heldur talaði hann um að það þyrfti að skilgreina hlutverk spítalans og ekki væri sjálfgefið að hann sinnti öllum þeim verkefnum sem hann sinnir núna, svona ef þetta væri innlegg í næstu 100 daga vinnu.
En mig langar til að spyrja út í meinta styrkingu heilsugæslunnar, sem fyrri heilbrigðisráðherra ríkisstjórnarinnar þreyttist seint á að berja sér á brjóst fyrir. Staðreyndin er nefnilega sú að tölurnar tala öðru máli. Þær sýna að aukið fjármagn fór vissulega til heilsugæslunnar, fylgdi tilfærslu verkefna þangað, en ekkert fór í að styrkja grunnþjónustu heilsugæslunnar. Þar dróst fjármagnið saman. Mig langar til að spyrja: Er það sýn ráðherrans á eflingu heilsugæslunnar að flytja þangað fjármagn með nýjum verkefnum og kalla það styrkingu heilsugæslunnar eða megum við eiga von á raunverulegri styrkingu heilsugæslunnar á næstu 100 dögum ráðherra í embætti?