152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

dagdeild fyrir krabbameinssjúka.

[15:33]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég kem hér upp til að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra um upplýsingar sem ég las í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, en þar segir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins frá því og lýsir vonbrigðum sínum með viðbrögð stjórnvalda við tilboði félagsins um 450 millj. kr. framlag til Landspítalans svo hægt sé að útbúa nýja aðstöðu fyrir dagdeild krabbameinssjúkra. En deildin er, eins og flestir vita, löngu sprungin og aðstaða sjúklinga og starfsfólks og aðstandenda vond.

Forsagan er sú að Krabbameinsfélagið fór til Landspítalans fyrir nokkrum árum síðan og bað þau um að lýsa fyrir sér í hvað þau myndu verja peningunum ef leysa ætti úr brýnasta vandanum. Hugmynd spítalans var sú, og er vonandi enn þá, samkvæmt mínum heimildum, að nýta K-bygginguna svokölluðu við Hringbraut sem staðið hefur ókláruð í þrjá áratugi. Með breytingum á fyrirliggjandi húsnæði væri hægt að koma fyrir dagdeild á annarri hæðinni þar sem lyfjameðferð fer fram og göngudeild á hinni hæðinni þar sem viðtöl fara fram. Og það þyrfti auðvitað að setja lyftuhús í bygginguna. Einnig má lesa í Læknablaðinu að yfirlæknar blóðlækninga og lyflækninga krabbameina á LSH taka undir með framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins og segja aðstöðuna eins og hún er með öllu óviðunandi. Aðstöðuleysi skapar alls kyns vanda sem gerir meðferð dýrari en hún þarf að vera. Krabbameinsfélagið er sem sagt reiðubúið til þess að leggja fram þriðjung þeirrar upphæðar sem áætlað er að þessar breytingar gætu kostað á K-byggingunni.

Forseti. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvers vegna hefur ráðherrann ekki brugðist við rausnarlegu tilboði Krabbameinsfélagsins? Hversu lengi eiga að krabbameinssjúklingar að bíða eftir fullnægjandi aðstöðu vegna lífsnauðsynlegrar meðferðar?