dagdeild fyrir krabbameinssjúka.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrir þessa spurningu. Mér er kunnugt um þetta. Hv. þingmaður fullyrðir hér að ráðherrann hafi ekki brugðist við og það er rangt. Ég hef átt fund með Krabbameinsfélaginu og ég hef rætt þetta við forstjóra spítalans. Það er rétt sem hv. þingmaður segir hér að það er mikil jákvæðni gagnvart þessu framlagi Krabbameinsfélagsins vegna þess að húsnæðið er sprungið. Þeir læknar sem ég hef átt samtal við eru líka mjög hlynntir þessu og að það þurfi eitthvað að gera. Við þurfum að hleypa spítalanum að í þessu verkefni. Nú erum við í uppbyggingu á stóru húsi sem við köllum meðferðarkjarna. Við erum með tvær einingar sem halda utan um þetta risastóra verkefni sem heita NLSH, sem er stýrihópur, og svo NLSH ohf. Spítalinn hefur verið á hliðarlínunni varðandi hönnun verkefnisins og það er komið að þeim tímapunkti. Þetta verkefni finnst mér rakið og ég hef rætt við forstjóra spítalans um að við þurfum að fara aðeins að breyta stjórnsýslunni varðandi þetta verkefni á þessum tímapunkti til að hanna innviðina, tengslin við aðrar byggingar og að spítalinn og Krabbameinsfélagið taki samtal beint um það hvernig þessu fjármagni verði best varið. Hv. þingmaður kemur inn á þessa deild, göngudeildarþjónustuna, það er hárrétt. Ég tel að þetta sé mjög virðingarvert framtak Krabbameinsfélagsins og ég held að miðað við þær raddir sem ég heyri á spítalanum að við eigum að nýta þetta tækifæri. En við þurfum að gera það í samhengi við uppbyggingu og heildina á öllum öðrum byggingum. (Forseti hringir.) Ég get nefnt bygginguna sem heldur utan um geðdeildina.