dagdeild fyrir krabbameinssjúka.
Hæstv. forseti. Mér var kunnugt um að hæstv. ráðherra hefði átt fund með fulltrúum Krabbameinsfélagsins en það sem ekki liggur fyrir er svarið við tilboði aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem haldinn var síðastliðið vor. Það er alveg rétt að við erum í gríðarstóru verkefni sem er uppbygging hins nýja Landspítala. En ég neita að trúa því að umfang þess verkefnis sé með þeim hætti og stjórnsýslan svo þung að ekki sé hægt að bregðast við tilboði Krabbameinsfélagsins sem í rauninni byggir á hugmyndum Landspítalans sjálfs og forgangsröðun Landspítalans sjálfs. Þær eru ekki alveg nýjar af nálinni af því að þessi vinna hófst fyrir nokkrum árum. Ég vil því brýna fyrir ráðherra að afstaða sé tekin til tilboðsins og að stjórnvöld vindi sér í það verkefni að gera dagdeild og göngudeild þannig úr garði (Forseti hringir.) að það sé sómandi og sæmi þjónustu sem er verið að veita mjög veiku fólki í krabbameinsmeðferð.