152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

raforkuöryggi.

[15:40]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Raforkuöryggi landsmanna hefur verið til umræðu upp á síðkastið í tengslum við orkustöðu þjóðarinnar, orkuskiptin og mögulegan orkuskort. Það er mikilvægt að við sofnum ekki frekar á verðinum varðandi raforkuöryggi, sérstaklega á landsbyggðinni. Afhendingaröryggi raforku er grundvallaratriði þegar kemur að uppbyggingu samfélags og í núverandi flutningskerfi raforku er orkuöryggi nokkuð mismunandi eftir búsetu og er sérstaklega slæmt víða á landsbyggðinni. Varaafl sem sinnir forgangsþörf er byggðum landsins mikilvægt en við heyrum allt of margar sögur af því að varaaflið sé því miður víða í lamasessi.

Í febrúar síðastliðnum vorum við minnt enn og aftur á takmarkanir varaafls í Vestmannaeyjum þegar skemmdir urðu á flutningskerfi Landsnets og varaaflið sem tók við dugði einungis til þess að sinna 45% af þörfinni, eins og vitað var. Landsnet hefur verið upplýst um þessa alvarlegu stöðu en ekki enn brugðist við. Í Vestmannaeyjum er forgangsorkuþörf um og yfir 11 MW, en samtals er varaafl rafmagns þar 5 MW. Það þarf ekki stærðfræðing til að sjá að þetta reikningsdæmi gengur ekki upp og það liggur í augum uppi að úrbóta er þörf. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson: Er hann meðvitaður um stöðuna og er það á dagskrá að grípa til einhverra ráðstafana eða framkvæmda til að tryggja varaafl í Vestmannaeyjum? Hvert hefur samtal ráðherra verið við Landsnet hvað þetta varðar?