152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

raforkuöryggi.

[15:42]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er stórmál sem snýr að raforkumálum okkar Íslendinga. Frá því að ég kom inn í ráðuneytið hef ég lagt á það höfuðáherslu að við séum að stíga skref til að taka á þeim vanda sem er til staðar og líka framtíðaráskorunum því að þær eru mjög miklar, m.a. út af metnaðarfullum áformum okkar í loftslagsmálum. Eitt það fyrsta sem ég gerði var að setja af stað raforkuöryggishóp til að skoða þessa þætti. Hv. þingmaður vísaði til Vestmannaeyja en þetta á ekki bara við um Vestmannaeyjar, þetta á við um fleiri staði á landinu. Sömuleiðis, og það verður kynnt á morgun, kemur niðurstaðan úr grænbók sem á að meta og taka út stöðuna í þessu máli, m.a. með tilliti til áskorana okkar í loftslagsmálum út af þeim markmiðum sem við höfum lagt fram. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum vakti athygli mína á þessum málum fljótlega eftir að ég tók við embætti og daginn eftir kallaði ég bæði á fulltrúa Landsnets og Landsvirkjunar út af þessum málum en ég stýri að vísu hvorugu fyrirtækinu. Hins vegar fór ég með minnisblað um málið í ríkisstjórn í byrjun febrúar. Það góða er að hlutirnir eru að þróast í rétta átt. Ég átti reyndar fund með bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum út af þessu máli fyrir bara nokkrum klukkutímum síðan því að þetta er staða sem við viljum ekki sætta okkur við, hvorki í Vestmannaeyjum né annars staðar. Þess vegna er þetta í algjörum forgangi. Við þurfum að hugsa til þess annars vegar til skamms tíma en síðan verðum við líka að horfa á stóru myndina því að við ætlum að ná mjög metnaðarfullum markmiðum.