152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

raforkuöryggi.

[15:44]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að heyra af fundi ráðherra með bæjarstjóra núna fyrir nokkrum klukkutímum síðan og ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrt og greinargott svar og jafnframt fagna því hversu metnaðarfullur ráðherra er í að taka á þessum málum því að það er gífurlega mikilvægt okkur Íslendingum að við séum framúrskarandi í orkuskiptum og loftslagsmálum. Hæstv. ráðherra bendir á það að við séum með metnaðarfull markmið í loftslagsmálum og þetta er risastór partur af því. En að öðru leyti þakka ég hæstv. ráðherra fyrir svarið.