um fundarstjórn.
Forseti. Það rataði á borð hjá mér dálítið alvarlegt mál. Svo virðist vera sem starfsreglur þingsins sem eru birtar á vefsíðu Alþingis séu ekki samþykktar af forsætisnefnd. Ég ætla að leyfa þingmönnum að velta aðeins fyrir sér hversu alvarlegt mál þetta er. Á sumarfundi forsætisnefndar á síðasta kjörtímabili var fjallað um drög að nýjum starfsreglum fyrir fastanefndir Alþingis og þar var samþykkt að senda þau drög til þingflokkanna til athugasemda fyrir ákveðna tímasetningu, en starfsreglurnar sjálfar voru aldrei samþykktar. Það var enginn fundur forsætisnefndar eftir þennan sumarfund til þess að samþykkja fundargerðina sem útskýrir hvernig starfsreglurnar skuli sendar til þingflokka til umsagnar. Það er ekki til samþykkt forsætisnefndar á núgildandi starfsreglum fastanefnda Alþingis sem þær starfa samkvæmt. Þetta hefur mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir mjög margt hérna á þingi. (Forseti hringir.) Ég vil leita álits forseta á þessum málum.