152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

fullgilding fríverslunarsamnings Íslands, Noregs og Liechtenstein og Stóra-Bretlands og Norður-Írlands.

206. mál
[15:49]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég styð þetta mál, en ég verð að segja að þegar það kom til okkar í utanríkismálanefnd bjóst ég við miklu meiri sóknarhug. Ég bjóst við þessum fjölmörgu tækifærum sem hefðu verið nýtt. Því var lýst yfir af fyrri ríkisstjórn að það fælust mörg og mikil sóknarfæri í Brexit. Við sjáum það ekki hér í þessum samningi. Ef eitthvað er þá er staða Íslands slakari eftir gerð þessa samnings en þegar Bretar voru í Evrópusambandinu. Ég hefði líka gjarnan viljað sjá frekari greiningu á því hvaða hagsmunamat hafi átt sér stað, líka hvaða atvinnugreinum hafi verið fórnað með tilliti til sjávarútvegs og landbúnaðar. Ég hefði því gjarnan viljað sjá miklu stærri og meiri skref miðað við öll þau fyrirheit sem gefin voru fyrir nokkrum misserum. En miðað við aðstæðurnar í dag tel ég engu að síður rétt að samþykkja þennan samning.