stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka forseta fyrir að vísa mér rétta leið í málinu á undan. Það er alveg ómetanlegt að fá slíka hjálp. Núna mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Með mér á málinu eru hv. þingmenn Flokks fólksins Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.
Ég ætla að vísa í greinargerðina með málinu sem segir að þetta mál hafi áður verið flutt á 150. og 151. löggjafarþingi. Þetta er því í þriðja sinn sem ég mæli fyrir þessu réttlætismáli. Það má segja að þetta mál, eins og það er lagt fyrir núna, óbreytt frá því á 151. löggjafarþingi, sé orðið þrautavaraleið fyrir það frumvarp sem hv. þm. Flokks fólksins, Eyjólfur Ármannsson, mælti fyrir um daginn og hefur verið eitt baráttumál hjá Flokki fólksins en það er að vera með frjálsar handfæraveiðar. Þar eru rökin í rauninni algerlega skýr hvað varðar atvinnufrelsi og það er engin ógn við lífríkið í kringum landið að veiða fisk á öngul eða krók.
Tvær umsagnir bárust um frumvarpið á 150. löggjafarþingi. Strandveiðifélagið Krókur lýsti yfir stuðningi við frumvarpið og kallaði eftir frekari breytingum á strandveiðikerfinu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi lýstu hins vegar yfir áhyggjum af efni frumvarpsins og töldu að kerfið óbreytt dygði til að tryggja skilvirkar strandveiðar. Við skulum sjá. Annars vegar eru það þeir aðilar sem vilja gjarnan fá að veiða hérna við ströndina og veiða á krók og hins vegar eru það þeir sem eru hér með flotvörpur og troll og soga upp nánast hvern einasta fisk sem á vegi þeirra verður og það virðist ekki vera nóg að þeir skuli í rauninni skrapa upp meira og minna allan fiskinn hringinn í kringum landið.
Frumvarpið er nú lagt fram í þriðja sinn, eins og ég sagði áðan, og er efni þess óbreytt að undanskilinni gildistöku.
Með frumvarpi þessu er lagt til að felld verði brott ákvæði um strandveiðar í lögum um stjórn fiskveiða sem setja þau skilyrði að óheimilt sé að stunda veiðar föstudaga, laugardaga og sunnudaga og að ráðherra geti með reglugerð bannað strandveiðar á almennum frídögum.
Er það ekki svolítið merkilegt að þér skuli vera úthlutað 12 dögum í mánuði, 48 dögum yfir strandveiðitímabilið, 48 dögum af 365 dögum á árinu, en þú færð ekki einu sinni að velja dagana sjálfur? Svona lög eru í einu orði ólög. Það er ekki nóg með að þú sért settur í spennitreyju og skorður séu reistar allt í kringum þig og þú múraður inni í einhverju regluverki sem er svo galið að það tekur ekki nokkru tali, þetta er það ruglað að ef þú getur ekki sótt sjóinn vegna veðurs á hinum vikudögunum þá detta þeir bara niður. Færðu að færa þá með þér á milli? Nei, þú færð það ekki neitt. Færðu þá ekki 48 daga? Nei, þú færð það ekki neitt. Fyrirgefðu, ágæti sjómaður, en þú misstir þarna af mánudeginum eða þriðjudeginum eða miðvikudeginum eða fimmtudeginum sem þú hafðir úr að velja. Það var svo leiðinlegt veður þannig að þú situr bara með þann kaleik í fanginu að nei, þú missir af því. Takk fyrir.
Þessum veiðum fylgja umtalsverð umsvif í höfnum og kærkomnar tekjur á landsbyggðinni yfir sumartímann en síðustu tvö strandveiðitímabil hefur ekki tekist að fullnýta úthlutaðar aflaheimildir til strandveiða. Það sem við erum að horfa upp á núna hins vegar, hugsa sér, er að það var eitt fyrsta verk nýs sjávarútvegsráðherra að skera niður heimildir til strandveiða um 1.500 tonn, takk fyrir. Þessi ríflega 10.200 tonn af óslægðum botnfiski sem voru áður leyfileg eru núna komin niður í 8.500 tonn. Það er í rauninni sárara en tárum taki að horfa upp á það hvernig ítrekað er einmitt leynt og ljóst þrengt að þeirri útgerð sem hefur engin skaðleg umsvif, getur ekki skaðað á nokkurn einasta hátt lífríki í kringum landið. Þegar við settum á þessa stýringu í sjávarútveginum á sínum tíma var grundvöllurinn í rauninni sá að verið væri að reyna að vernda fiskstofnana í kringum landið og að þeir þyrftu á þessari vernd að halda þó svo að það hafi nú nánast ekki skilað einu einasta tonni á þeim tugum ára sem liðin eru síðan þessi stýring var sett á sameiginlega auðlind okkar þjóðarinnar.
Þannig að ég segi ekki annað en það að þegar farið er að höggva í strandveiðarnar eins og er verið að gera núna þá er maður eiginlega að verða algerlega mát, bara orðlaus, vegna þess að við vitum að það eru heilu og hálfu sjávarplássin í kringum landið sem úr er búið að kreista nánast hvern einasta lífsneista. Við höfum verið að láta þessum byggðum hreinlega blæða út án þess að spyrna við almennilega fótum. Við vildum sjá nýliðun í greininni. Við vildum sjá unga menn og konur geta farið að fiska á krók. Það liggur við að það sé orðið það strangt og það slæmt að maður þori ekki einu sinni að fara út á bryggju að veiða marhnút á öngul.
Virðulegi forseti. Hér er verið að tala um að smábátasjómennirnir, strandveiðisjómennirnir, týni hér engum af þessum 48 dögum. Hér fá þeir að velja sjálfir hvenær þeir fara og sækja sjóinn á þessu tímabili, þessu fjögurra mánaða tímabili sem þessir 48 dagar spanna, enda líka oft verið að tala hér um einhverjar ólympískar veiðar og annað slíkt þegar kerfið býður upp á það að menn drífi sig að sækja sjóinn nánast hvernig sem viðrar. Það er nákvæmlega þannig sem það er með gildandi lög. Það er nákvæmlega þannig að til þess að smábátasjómennirnir okkar týni ekki þessum dögum, þessum þó fáu dögum sem þeim er úthlutað, þá reyna þeir að sækja sjóinn þessa daga þó að það sé bara haugabræla. Það er ekki flóknara en það. Við erum því ekki bara ósanngjörn, óréttlát og algerlega í ruglinu hvað varðar stýringu í þessu kerfi heldur erum við að skapa stórkostlega hættu fyrir þessa sjómenn. Við erum að stefna þeim í óþarfa hættu.
Þannig að ég segi bara, virðulegi forseti: Ég vísa þessu máli núna til hv. atvinnuveganefndar og ég vona að ég þurfi ekki að mæla fyrir því einu sinni enn. Ég vil taka það fram að þetta er þrautavaraleið vegna þess að Flokkur fólksins vill frjálsar handfæraveiðar. Við teljum að það muni vera grundvöllurinn fyrir bættri búsetu og blómlegri byggð í sjávarplássunum okkar hringinn í kringum landið.