152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

stjórn fiskveiða.

59. mál
[16:16]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp til laga um strandveiðar er eiginlega stórmerkilegt, að við skulum þurfa að mæla fyrir þessu máli aftur og aftur. Það er óskiljanlegt að ríkisstjórn sem getur sett svona arfavitlausa vinnutilhögun í lög skuli vera við völd. Um er að ræða sjósókn á litlum bátum til handfæraveiða og undarlegt að sett skuli lög um að þeir megi bara fara út til veiða á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Það væri sennilega hægt að setja jafn kolvitlaus lög um að bændur mættu aldrei heyja nema á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum, ekki eftir veðri heldur bara eftir dögum, þeir yrðu að gjöra svo vel að hlíta því. Ég held að engum myndi detta í hug að setja þau lög nema auðvitað ríkisstjórninni sem hefur viðhaldið þessum lögum.

Það segir sig sjálft að það á að vera sjálfsagt að taka þetta mál til afgreiðslu. Það er sjálfsagt að bera þá virðingu fyrir þeim sem stunda þessar veiðar að þeir hafi þann rétt að nýta þessa 12 daga eins og þeim hentar, eftir veðri og vindum en ekki eins og einhverri ríkisstjórn hentar, til að reyna að draga úr getu þeirra til að stunda þessar veiðar. Eins og hefur komið fram er það auðvitað stórfurðulegt að ef þeir geta ekki, vegna veðurs eða annars, nýtt sér þessa daga þá detta þeir dauðir niður. Það er eiginlega langt út fyrir allt það sem maður getur verið viðbúinn að hafa þannig lög.

Ég styð þetta mál heils hugar. Eins og hefur komið skýrt fram eru frjálsar handfæraveiðar það eina sem eitthvert vit er í ef við ætlum á einhvern hátt að reyna að bjarga strandbyggðum landsins og leyfa fólkinu að njóta þessa. Við verðum að átta okkur á því að það er fólkið í landinu sem á fiskinn í sjónum, ekki einhverjir örfáir útvaldir einstaklingar sem hafa getað keypt upp allan kvóta landsins. Það er fólkið sem býr á þessum svæðum sem á að hafa þann rétt að fara út á sinn fjörð eða út í sitt næsta umhverfi til að veiða og þá sérstaklega á handfærum. Það hefur verið sýnt fram á, var nefnt í síðustu umræðu, að frjálsar handfæraveiðar eru vistvænar veiðar. Þetta hefur líka verið að skila sér beint á markað um 90% þannig að þetta er á allan hátt jákvætt. En því miður virðist ríkisstjórnin vilja hafa hlutina neikvæða þannig að hún vill ekki gefa handfæraveiðar frjálsar, eins og væri sjálfsagt, og einnig vill hún sjá til þess að þeir einstaklingar sem stunda sjómennsku geti ekki valið þá daga sem henta þeim, heldur vill ríkisstjórnin skikka þá til að taka ákveðna daga sem er algjörlega út í hött og fáránlegt.