152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

stjórn fiskveiða.

59. mál
[16:20]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég er stoltur meðflutningsmaður þessa frumvarps til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Eins og kemur fram í 1. gr. gerir frumvarpið ráð fyrir því að 1. tölul. 6. mgr. 6. gr. a í lögum um stjórn fiskveiða verði felldur niður en hann kveður á um að óheimilt sé að stunda veiðar föstudaga, laugardaga og sunnudaga og að ráðherra sé heimilt með reglugerð að banna strandveiðar á almennum frídögum. Hér er takmark sem hefur í raun enga þýðingu nema það reynir að koma í veg fyrir að strandveiðimenn geti stundað vinnu sína.

Fyrsti flutningsmaður þessa máls minntist á ólympískar veiðar. Ef eitthvað leiðir til ólympískra veiða þá eru það núverandi takmarkanir í vikunni. Um leið og búið er að leyfa veiðar á þessum dögum líka, að sjómenn fái að velja hvaða daga þeir ákveða að fara út, erum við komin með miklu betra kerfi. Flokkur fólksins styður allt frelsi, allt sem leiðir til aukins frelsis í núverandi kerfi, allt saman. Það eru engin málefnaleg rök fyrir því að banna veiðar föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Af hverju ekki að banna þær á fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum eða miðvikudögum, fimmtudögum og þriðjudögum? Það er ekkert sem segir að það eigi að banna veiðar þessa daga vikunnar.

Varðandi takmörkunina þá eru náttúrlega takmarkanir á veiði í strandveiðikerfinu. Ég tek sem dæmi veðurfar og að handfærarúllurnar ógna ekki fiskstofnunum, þær gera það bara ekki. Það að veiða fisk á öngul á handfærarúllu, það ógnar ekki fiskstofnum. Veiðihæfni króka er einfaldlega þannig að fiskur þarf að bíta á. Þetta eru umhverfisvænar veiðar, þetta eru umhverfisvænustu veiðar sem völ er á. Báturinn siglir fyrir vélarafli á veiðislóð, það er slökkt á vélunum og svo eru handfærarúllurnar rafmagnsrúllur. Það er ekki hægt að finna umhverfisvænni veiði á nokkurn einasta hátt.

Ég mælti fyrir frumvarpi hér í síðustu viku um frjálsar handfæraveiðar. Það er að sjálfsögðu hið endanlega takmark að strandveiðar verði gefnar frjálsar til að efla byggð í landinu. Þetta er búseturéttur sjávarbyggðanna, búseturéttur landsbyggðarinnar og fólks úti á landi og mikið réttindamál fyrir hinar dreifðu byggðir. Þetta er mannréttindamál. Það er þegar búið að falla álit hjá mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna árið 2007 sem sagði að núverandi fiskveiðistjórnarkerfi væri brot á mannréttindum, væri brot á jafnræði borgaranna. Viðbrögð stjórnvalda við þeim úrskurði voru m.a. að koma á núverandi strandveiðikerfi. Ég tel það kerfi sem nú er í gildi ekki fullnægjandi svar stjórnvalda við þessum úrskurði frá Sameinuðu þjóðunum, um brot gegn jafnræði. Og af hverju er það? Jú, það er vegna þess að þetta eru allt of fáir dagar, 12 dagar í mánuði, og þetta er einungis fjóra mánuði á ári, 48 daga á ári. Þetta gefur allt of lítið svigrúm fyrir veiðarnar og fjölskyldur geta ekki lifað á þessu. Það getur enginn lifað á því á ársgrundvelli að stunda veiðar þessa daga. Aflaheimildirnar sem settar eru í strandveiðipottinn eru allt of lágar.

Nú er við völd sjávarútvegsráðherra frá Vinstri grænum. Eitt fyrsta embættisverk hans var hvað? Jú, það var að skerða aflaheimildir í strandveiðikerfinu um 1.500 tonn. Í mínu kjördæmi fóru frambjóðendur Vinstri grænna um kjördæmið og eitt helsta baráttumál flokksins í Norðvesturkjördæmi var að efla strandveiðarnar, það var að efla sjávarbyggðirnar. Og hvað gerist? Jú, þær eru skertar um 1.500 tonn. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli en skiptir nákvæmlega engu máli upp á vernd fiskstofna við landið, engu. Við erum að veiða rúmlega 220.000 tonn af þorski og 1.500 tonn af þorski er innan við 1%, langt innan við 1%.

Núverandi stjórnvöld ganga því gegn núverandi kerfi. Þau vilja ekki veg strandveiðanna mikinn, þau vilja ekki efla þær. Það er alveg klárt mál og það skiptir engu máli þótt þau hafi fyrir kosningar sagst ætla að efla strandveiðarnar. Það er klárt mál að ráðherrar Vinstri grænna eru ekki að gera það. Og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi líta ekki á strandveiðar sem alvöruatvinnugrein. Þau hafa hreinlega sagt, í umsögn við frumvarp til laga, að þetta sé ekki alvöruatvinnugrein. Það stendur alveg svart á hvítu.

Í þessu kerfi er á brattann að sækja að efla strandveiðarnar en við munum svo sannarlega halda áfram að berjast fyrir því. Þetta litla frumvarp um það að strandveiðimenn geti veitt alla daga vikunnar, eða a.m.k. veitt á föstudögum, laugardögum og sunnudögum líka, er í átt til frjálsræðis og til að efla þetta kerfi þótt lítið sé. Það er mjög mikilvægt að sú barátta haldi áfram. Ég trúi ekki öðru en að þetta frumvarp fái góða umsögn og góða málsmeðferð í atvinnuveganefnd og verði að lögum fyrir sumarið, þannig að strandveiðimenn geti líka veitt á föstudögum, laugardögum og sunnudögum þegar þeir kjósa að veiða og þegar veður leyfir. Það eru engin málefnaleg rök gegn því að þessi grein verði felld niður.