staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Hörmungarnar í Úkraínu kalla líka á viðbrögð á Íslandi. Samstaða Vesturlanda í viðbrögðum sínum hefur verið meiri en menn kannski væntu, sem betur fer, en við þurfum að huga að því hvernig við getum komið að mestu liði hér, Íslendingar, til lengri og skemmri tíma. Það blasir við að fyrsta verkefnið er að hjálpa fólki sem er á flótta frá Úkraínu og ljóst að flóttamannastraumurinn verður sá mesti í Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Við höfum þegar veitt fleira fólki hæli á Íslandi en Bretar hafa gert og það munu margir fleiri fylgja á eftir. En við þurfum líka að styðja við þjóðirnar og löndin næst Úkraínu þar sem álagið er mest vegna straums flóttamanna og ekki gleyma þeim sem starfa í nærumhverfinu þó að stuðningur við þau lönd sé ekki eins sýnilegur og það sem við gerum hér á Íslandi.
En í ljósi þess að það liggur fyrir að við munum taka við miklum fjölda flóttamanna á næstu misserum er afskaplega brýnt að við lögum flóttamannakerfið. Það hefur lengi verið vanrækt, ég hef reynt að benda á þetta á undanförnum árum en hælisleitendakerfið á Íslandi virkar ekki sem skyldi. Hæstv. dómsmálaráðherra nefndi þetta fyrir fáeinum dögum síðan og boðar frumvarp sem hann hyggst leggja fram hér á morgun. Það eitt og sér dugar ekki til — eins og hæstv. ráðherra lýsti í útvarpsviðtali í morgun tók Útlendingastofnun 200 hótelherbergi á leigu í síðustu viku og ætlaði að bæta öðrum 200 við og þau yrðu fljót að fyllast — þegar kerfið, sem var í raun hannað eftir seinni heimsstyrjöld til að taka við tímabundnum og verulegum straumi flóttafólks úr stríðsástandi, hefur ekki verið lagað að breyttum aðstæðum á 21. öld. Það er því mikilvægt að við endurmetum það til að geta veitt sem mesta aðstoð nú þegar hún er orðin eins aðkallandi og raun ber vitni. En ávallt þarf þó að hafa það í huga, sem ég nefndi hér áðan og hef gert ítrekað, að við megum ekki gleyma mikilvægi þess að aðstoða á nærsvæðunum þó að það sé ekki eins sýnilegt og það sem við gerum hér á Íslandi.
Við munum augljóslega líka þurfa að taka afstöðu til varnarsamstarfsins sem við erum þátttakendur í, Atlantshafsbandalaginu. Það er ekki ólíklegt og raunar nánast gefið að umsvif NATO með þessari breyttu heimsmynd munu aukast og staða Íslands á hnettinum verði aftur mikilvæg í því samhengi eins og hún var í tíð kalda stríðsins. Þar þurfum við að vera reiðubúin til samstarfs við aðrar vestrænar þjóðir um varnarmál. Við þurfum líka að hugleiða hvernig við, ekki bara Ísland heldur Vesturlönd öll, lögum okkur að þeirri gjörbreyttu heimsmynd sem blasir nú við. Þetta á ekki hvað síst við á sviði orkumála. Þetta hefur mikið verið rætt síðustu vikuna og rúmlega það í nágrannalöndum okkar, í Bandaríkjunum, Bretlandi og raunar alls staðar á Vesturlöndum, að Vesturlönd þurfa að verða í meira mæli sjálfum sér næg um orku. Vesturlönd, Evrópuríki sérstaklega, senda um 700 milljónir dollara á dag til Rússlands, til stjórnvalda í Rússlandi, sem greiðslu fyrir orku. Þessi lönd eru háð þessari orku, telja sig varla geta án hennar verið. Það veikir stöðu Vesturlanda gagnvart stjórnvöldum í Rússlandi. Þessu verður ekki mætt með því að fjölga enn vindmyllum. Vindmyllum mun eflaust fjölga en það leysir ekki orkuþörf Vesturlanda næstu árin eða áratugina. Vonandi sjáum við fram á áframhaldandi framþróun í orkuframleiðslu, í tækni, í umhverfisvænni endurnýjanlegri tækni, en það er hins vegar algerlega ljóst að heimurinn, og þar með talið Vesturlönd, mun þurfa meira gas og meiri olíu um fyrirsjáanlega framtíð næstu árin og næstu áratugina. Þess vegna finnst mér að það hljóti að vera að ríkisstjórn Íslands, og vonandi getur hæstv. utanríkisráðherra tjáð sig aðeins um þetta, endurskoði þá undarlegu ákvörðun að áforma bann við rannsóknum og leit að olíu og gasi í íslenskri lögsögu á sama tíma og norsk stjórnvöld eru nýbúin að gefa út 53 ný rannsóknar-, leitar- og vinnsluleyfi í sinni lögsögu.
Um öll Vesturlönd er nú rætt um mikilvægi þess að þessi lönd verði í auknum mæli sjálfum sér næg um orkuframleiðslu. Þar eigum við einnig að leggja okkar af mörkum en við þurfum líka að hugleiða hvort við þurfum ekki að standa okkur betur. Nú tala ég hér ekki bara um okkur hér á Íslandi heldur þessar vestrænu þjóðir sem standa nú saman gegn þessari ógn, hvort við þurfum ekki að standa okkur betur í að verja þau gildi sem hafa skilað okkur þeim árangri sem Vesturlönd hafa náð, þau gildi sem Úkraínumenn eru núna að deyja fyrir, berjast fyrir á götum borga landsins. Lýðræði, raunverulegt virkt lýðræði, að fólk geti ráðið sjálft sinni framtíð og hvernig löndunum er stjórnað og að stjórnmálaumræða og ákvarðanir snúist um raunverulegt innihald og raunveruleg áhrif þeirra ákvarðana sem eru teknar en ekki, eins og hefur verið þróunin, því miður, á Vesturlöndum og átt þátt í að veikja Vesturland gagnvart ógnunum, að yfirborðsmennskan verði allsráðandi. Forseti Rússlands hefur fylgst með þessari þróun og það hafa stjórnvöld í öðrum vaxandi ríkjum einnig gert og talið stöðu sína styrkjast fyrir vikið. Þegar Rússland gerði innrás í Úkraínu lýsti forseti Rússlands því yfir að þeir væru að ráðast gegn nasistum, stjórn nasista í Úkraínu. Augljóslega fráleit yfirlýsing. En þetta hafði forsetinn eftir umræðu á Vesturlöndum þar sem menn fara allt of frjálslega nú til dags með það að stimpla fólk og kalla það illum nöfnum. Yfirborðsmennskan er orðin of áberandi. Í Kanada, þar sem bændur og vöruflutningabílstjórar efndu til mikilla mótmæla, töluðu stjórnvöld í því landi um þá sem fasista, jafnvel nasista, sem var ósanngjarnt. En ef við förum svona frjálslega með staðreyndir hér á Vesturlöndum, í okkar vestræna lýðræði og umræðan verður of yfirborðskennd, þá veikir það stöðu okkar gagnvart ógnum eins og birtast núna í Úkraínu og kunna að koma víðar að. Styrkleiki okkar liggur í þeim grunngildum sem skiluðu þeim árangri sem við höfum náð og ekki hvað síst í lýðræðinu, í því að ræða raunverulegt innihald hluta, staðreyndir — ekki áróður, ekki falsfréttir eins og nú berast í stríðum straumum frá Rússlandi — heldur að rökræða um staðreyndir og bestu leiðirnar fram á við. Þess vegna þurfum við að ræða þetta stóra viðfangsefni sem heimurinn stendur frammi fyrir út frá staðreyndum og því hvernig við getum best orðið að liði, ekki út frá umbúðum, frösum, staðreyndum og raunverulegum lausnum máls.