152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.

[18:17]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Það geisar stríð í Evrópu og við finnum fyrir ógninni. Rússneski herinn heldur áfram að sækja inn í Úkraínu með mannfalli og eyðileggingu og meira en milljón manns eru á flótta. Við hér á Íslandi finnum fyrir ógninni. Með stríðinu í Úkraínu erum við í raun ekki svo langt frá heimsins vígaslóð. Vera okkar í NATO, varnarbandalagi vestrænna lýðræðisþjóða, veitir okkur tryggingu sem merkir að við sem herlaus þjóð vitum að hermenn annarra NATO-þjóða munu verja okkur ef á okkur verður ráðist. En við tökum þátt í viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi með öðrum þjóðum, listafólkið og íþróttafólkið okkar gerir líka sitt. En hvað getum við gert meira? Við getum tekið á móti flóttafólki, safnað fé fyrir nauðstatt fólki í Úkraínu og sent þeim vistir og við stjórnmálamennirnir, þingmenn og ráðherrar, getum talað við öll tækifæri í alþjóðanefndum og fundum erlendis fyrir friði og friðsamlegum lausnum til að stöðva stríðið. Við megum aldrei gefast upp á að leita eftir friðsamlegum lausnum og til þess þurfa samskiptaleiðir við stríðandi fylkingar að vera til staðar. Þess vegna er það alvarleg aðgerð sem á ekki að grípa til nema í lengstu lög að kalla sendiherra heim eða vísa úr landi.

Hvað getum við gert til að stuðla að bættu samfélagsöryggi hér á landi? Við gerum það með því að fylgja eftir þjóðaröryggisstefnunni sem var samþykkt á Alþingi árið 2016. Þjóðaröryggisráð á samkvæmt lögum að fylgja þeirri stefnu eftir og kalla eftir upplýsingum frá viðeigandi ráðuneytum og stofnunum um hvernig staðan er á einstökum þáttum sem skipta þar máli. Netöryggi er þar á meðal og fjarskipti. Netárásir eru beinar árásir á innviði og geta bæði beinst að opinberum stofnunum og einkafyrirtækjum. Þeim þurfum við að kunna að verjast. Við þurfum að byggja upp neyðarforða og fylgjast með ferðum um landamæri á sjó og lofti. Meta þarf styrk almannavarna og aðra þá þætti sem varða þjóðaröryggisstefnu landsins og mun líklegast reyna á ef stríðið breiðist út. Það þarf einnig að meta afleiðingar og áhrif aðgerða gegn Rússlandi á íslenskt efnahagslíf og daglegt líf borgaranna og teikna upp sviðsmyndir með mótvægisaðgerðum innan lands ef gert er ráð fyrir að ákveðnir hópar samfélagsins þurfi að líða meira en aðrir fyrir þær. En við munum axla ábyrgð og taka á okkur þrengingar ef það má verða til þess að stuðla að friði, mannréttindum og frelsi, fyrir þau gildi sem opin og frjáls lýðræðissamfélög byggjast á og nú er ógnað.

Í valdatafli nýta aðilar sér upplýsingaóreiðu til að rugla fólk í ríminu, til að veikja andstæðinginn og gera honum erfiðara um vik að verjast. Upplýsingaóreiða og falsfréttir eru alltaf hluti af stærri áætlun þeirra sem hag hafa af útbreiðslunni. Pútín beitti upplýsingaóreiðu í aðdraganda innrásarinnar í Úkraínu og það er nokkuð ljóst að almenningur í Rússlandi fær ekki rétta mynd af stríðinu með fréttum þar í landi. Netárásir, upplýsingaóreiða og falsfréttir virða engin landamæri og það er því afar brýnt að þjóðir vinni saman og standi saman gegn þessum ógnum og við ættum að vinna náið með Evrópusambandinu, ekki síður en NATO í þeim efnum. Netið er bæði ógn og vörn því að upplýsingarnar, rangar eða réttar, berast hratt á milli manna og á milli landa. Það er von mín að netið, samfélagsmiðlarnir og leiðir unga fólksins og krafa þeirra um frelsi, opin samfélög og lýðræði verði til þess að stríðið verði stutt og friður náist sem fyrst.