152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.

[18:22]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Pútín Rússlandsforseti og rússnesk stjórnvöld hafa með innrásinni í Úkraínu hafið styrjöld í Evrópu gegn frjálsi og fullvalda þjóð, gegn tilverurétti hennar og mannréttindum. Átökin ógna friði í heiminum enda er engin vissa fyrir því að þau takmarkist við Úkraínu. Innrásin er brot á alþjóðalögum sem samskipti þjóða byggjast á og samningum sem Rússar hafa undirgengist. Í Búdapestsamningnum frá árinu 1994 lofuðu Rússar, Bretar og Bandaríkjamenn að virða sjálfstæði og landamæri Úkraínu. Rússar hafa brotið þann samning sem er grundvöllur að landamærum og sjálfstæði Úkraínu. Innrásin í Úkraínu sýnir mikilvægi aðildar Íslands að NATO og varnarsamnings okkar við Bandaríkin sem eru grunnstoðir þegar kemur að utanríkisstefnu Íslands og í öryggis- og varnarmálum landsins.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er hvorki minnst einu orði á aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu, NATO, né varnarsamninginn við Bandaríkin þegar kemur að öryggis- og varnarmálum okkar Íslendinga. Forsætisráðherra landsins er andstæðingur NATO og varnarsamningsins við Bandaríkin, þessara grunnstoða í öryggismálum þjóðarinnar. Á þessum tímum er það með hreinum ólíkindum. Stefna VG, flokks forsætisráðherra, fer gegn grundvallaröryggishagsmunum Vesturlanda. Svo einfalt er það. Það er ekki hægt að segja þetta með öðrum orðum. Það er ótrúlegt að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki haft öryggishagsmuni þjóðarinnar meira í huga við gerð grundvallarplaggs núverandi ríkisstjórnar, sjálfs stjórnarsáttmálans.

Allar þjóðir Austur-Evrópu voru hersetnar af Sovétríkjunum í kalda stríðinu og fengu frelsi við fall Sovétríkjanna. Þegar þær fengu frelsi frá Sovétríkjunum lögðu þær strax gríðarlega áherslu á að gerast aðilar að NATO. Af hverju var það? Jú, til að tryggja hið nýfengna frelsi og hin nýfengnu mannréttindi. NATO-aðildin tryggir þeim þetta frelsi. Það þarf að gera með herstyrk NATO. Sagan og saga Evrópu hefur kennt okkur að þetta frelsi verður eingöngu varið með varnarbandalaginu sem er Atlantshafsbandalagið. Ísland á að taka virkan þátt í þessu starfi og það er þar sem við verðum að bregðast við þeirri ógn og því stríði sem er í Úkraínu. Það verður ekki gert með neinum öðrum hætti. Við eigum að taka fullan þátt í því starfi sem nú fer fram bæði innan NATO og líka hvað varðar efnahagsþvinganir.

Vert er að minna á að Evrópuráðinu, mannréttindakerfi Evrópu, mannréttindasáttmála Evrópu og Mannréttindadómstól Evrópu var komið á í kalda stríðinu til að skapa grundvöll fyrir baráttu hins frjálsa heims og hvaða grunngildi NATO var ætlað að verja. Það er það sem verið er að berjast fyrir; mannréttindi og frelsi og fullveldi úkraínsku þjóðarinnar. Mannréttindasáttmáli Evrópu er grunnstoð fyrir Ísland í mannréttindum og hefur haft gríðarleg áhrif hér. Sjálfur mannréttindakafli stjórnarskrárinnar byggist á þessum sáttmála. Ég get ekki annað en minnt þingheim á einar merkustu ræður í sögu Alþingis sem fluttar hafa verið í þessum ræðustól. Það eru ræður Bjarna Benediktssonar og Jóhanns Jósefssonar árin 1951 og 1952 þegar Ísland gerðist aðili að Evrópuráðinu og mannréttindasáttmála Evrópu. Þar kemur klárlega fram fyrir hverju var verið að berjast. Þessi barátta fer núna fram í Úkraínu. Úkraínska þjóðin er að berjast fyrir sömu gildum og koma fram í mannréttindakafla okkar og í mannréttindasáttmála Evrópu.

Mig langar aðeins að minnast á ræðu Jóhanns Jósefssonar, svo að ég taki hana sem dæmi, þar sem hann vitnar í fulltrúa Íslands, Pétur Benediktsson sendiherra, sem segir varðandi Evrópuráðið:

„Þessi samtök til verndunar mannréttindum eru hornsteinn þess varnarvirkis, sem verður bakhjarl baráttu vorrar fyrir mannréttindum gegn þeim, sem nú ógna rétti og persónulegu frelsi.“

Það er þetta persónulega frelsi og þessi mannréttindi sem núna eru átök um í Úkraínu. Úkraínska þjóðin hefur verið með hetjulega baráttu gegn innrásarliðinu til að verja þessi mannréttindi sem við tökum sem sjálfsögðum hlut.

Mikilvægt er að Ísland standi þétt með vestrænum þjóðum í þeim aðgerðum sem þær hafa farið í til að stöðva stríðið í Úkraínu sem hófst með innrás Pútíns og þeim aðgerðum sem ætlað er að tryggja öryggi okkar. Það er ekki bjart fram undan í þessu stríðsátökum. Rússar hafa jafnað borgir algerlega við jörðu, líkt og Grosní í Tsjetsjeníu og Aleppó í Sýrlandi. Slíkar hörmungar gætu átt sér stað í Úkraínu. Við í Flokki fólksins lýsum yfir fullri samstöðu með hinni hugrökku úkraínsku þjóð sem berst við ofurefli á þessari örlagastundu. Við lýsum einnig yfir samstöðu með þeim fjölmörgu hugrökku Rússum (Forseti hringir.) sem hafa mótmælt árásum yfirvalda þar í landi í fjölmörgum borgum. Mikilvægt er að við tökum vel á móti þeim Úkraínumönnum sem hingað vilja leita á þessum erfiðu tímum í sögu úkraínsku þjóðarinnar og Evrópu allrar.