152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.

[18:27]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu. Við ræðum hér skelfilega innrás rússneskra stjórnvalda í Úkraínu sem hefur gjörbreytt heimsmynd Evrópubúa til langs tíma og þá horfum við til næstu áratuga. Við höfum séð Evrópusambandið takast á við málið með öðrum hætti en við höfum séð áður í sögu Evrópusambandsins. Við höfum séð Þýskaland gjörbreyta stefnu sinni í öryggis- og varnarmálum, Svíþjóð og Finnland og fleiri þjóðir. Nú er svo komið að Svíþjóð og Finnland eru líkleg til að ganga í Atlantshafsbandalagið, eitthvað sem hefði talist óhugsandi fyrir einhverju síðan. Öryggisstefna Evrópu, öryggismál í Evrópu, orkustefna í Evrópu, olíugjöldin og græn orka og orkuskiptin eru held ég umræða næstu missera sem mun taka allt yfir í pólitískri umræðu í Evrópu. Það eru nefnilega svo stór og mikil tengsl á milli orkubúskaparins, hvernig við knýjum áfram hagkerfin í Evrópu og öryggismála. Olía og gas og orkuverð í heiminum, við höfum séð gríðarlega hækkanir á undanförnum vikum í tengslum við stríð og aðdraganda þess þannig að olíuverð og gasverð fer upp úr öllu valdi í vetur. Nú er svo komið að 40% af jarðgasi sem knýr Evrópu áfram eða hitar upp húsin kemur frá Rússlandi og um 20% frá Noregi.

Mig langar síðan enn frekar að benda á að rétt tæplega fjórðungur af öllu hveiti sem er neytt í Evrópu kemur frá Rússlandi og tæplega 10% hafa komið frá Úkraínu á síðustu árum. Kornverð hefur hækkað mikið að undanförnu og er að skella á af fullum þunga hér á landi, bæði hækkandi verð og mögulega skortur á korni næsta vetur. Þrjár búgreinar á Íslandi eru verulega háðar innflutningi á korni; svínarækt, alifuglarækt og mjólkurframleiðsla. Hér er rétt að hafa í huga að alifugla- og svínarækt er algerlega háð innfluttu korni. Mjólkurframleiðsla hefur allt að 25% af sinni fóðurþörf frá kjarnfóðri. Því gæti orðið kjötskortur þegar líður á. Verð á áburði hefur einnig hækkað mikið eins og hefur komið fram í vetur. Mögulega mun verð á áburði hækka enn frekar vegna hækkandi olíuverðs. Við skulum vona að nú þegar sé búið að ganga frá áburðarkaupum fyrir komandi sumar. En allir þessir þættir, hækkandi olíuverð, hækkandi verð á kjarnfóðri og áburði ásamt óvissu til lengri tíma um afhendingu, munu strax á næstu vikum hafa áhrif og ákveðnir bændur taka ákvarðanir sínar í tengslum við búskapinn á komandi misserum.

Það sem er raunverulega stóra málið og eitt helsta málið sem verið var að ræða í NATO-þinginu fyrir ekki löngu síðan, á febrúarfundinum, og þingmenn hafa rætt líka um Evrópu eru aðfangakeðjur. Aðfangakeðjurnar eru að rofna. Við þekktum þetta í gegnum Covid-19 og við erum að sjá þetta aftur núna í Evrópu í tengslum við innrás rússneskra stjórnvalda. Við þurfum nefnilega að huga að því að framleiða aftur í Evrópu, stytta í aðfangakeðjunum, framleiða vörur og málma. Að undanförnu hefur þjónustuhagkerfið verið að taka yfir efnahagslífið í Evrópu. Nú vakna spurningar um hvort ekki þurfi að huga að því að efla framleiðslu á vörum og t.d. málmum í Evrópu. Það þarf að huga að atvinnulífi í Evrópu og tryggja að iðnaðurinn, framleiðsluhagkerfið, sé áfram í Evrópu.

Ég vil enn, eins og ég hef gert í fyrri ræðum þegar við ræðum þessi mál og síðastliðið ár, koma fram með að það er mikilvægt að endurskoða þjóðaröryggisstefnuna sem samþykkt var í þinginu í apríl 2016. Þegar hún var samþykkt kom fram að hún skyldi endurskoðuð eftir fimm ár. Það hefur ekki lítið gerst í samfélaginu á þessum fimm árum; mikið óveður í desember 2019 þegar flutningskerfi raforku og fjarskiptin gáfu eftir, jarðhræringar á Reykjanesskaga á síðasta ári, stríð í Evrópu núna, umræða um fæðuöryggi, rof í aðfangakeðju. Þannig að ég ítreka þá ósk til íslenskra stjórnvalda að þjóðaröryggisstefnan sé endurskoðuð sem allra fyrst og kláruð.

Úkraínska þjóðin stendur frammi fyrir gríðarlega erfiðu verkefni og mikilvægt að við gerum okkar allra besta til að styðja við hana með sem öflugustum hætti á erfiðum tímum. Við Íslendingar erum lítil friðelskandi þjóð, smáríki norðarlega í Norður-Atlantshafi, þjóðríki sem á allt undir því að alþjóðleg alþjóðalög séu virt. Við skulum hafa í huga að lýðræði eins og við þekkjum það í hinum vestræna heimi er ekki gamalt fyrirbæri og lýðræðisþjóðirnar þurfa svo sannarlega að hafa fyrir því að verja það, verja lýðræðið, verja frelsið.