staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Stríðsástandið sem nú stendur yfir er auðvitað ófyrirgefanlegur harmleikur sem kom heimsbyggðinni allri í opna skjöldu. Viðbrögð okkar hafa verið skjót í takti við það til að mæta ástandinu með hraði og það er raunverulega jákvætt að sjá hversu fljót við getum verið að bregðast við þegar þörf er á. Það er fagnaðarefni að Ísland sé reiðubúið að taka úkraínsku flóttafólki opnum örmum, svo gott sem fyrirvaralaust, eins og raun ber vitni. Hins vegar vekja viðbrögðin upp ýmsar spurningar um fordæmi og framkvæmd og mig langar að snerta á nokkrum þeirra. Til að byrja með hefði verið betra og sterkara að veita fólki á flótta frá Úkraínu stöðu flóttamanna í stað þess að veita þeim einungis dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Staða flóttamanns felur í sér sterkari réttindi og þar af leiðandi aukna vernd. Við ættum að sýna alþjóðasamfélaginu að okkur sé alvara og setja leiðandi fordæmi fyrir aðrar þjóðir.
Í öðru lagi hefur hæstv. dómsmálaráðherra virkjað 44. gr. útlendingalaga, grein sem gerir flóttafólki frá Úkraínu kleift að njóta milliliðalausrar verndar án þess að fara í gegnum flókið og langdregið umsóknarferli. Þetta er í fyrsta sinn sem við virkjum þessa grein hér á landi og hæstv. dómsmálaráðherra sagði jafnvel í viðtali að hér værum við að horfa á ákveðin tímamót. Þetta eru sannarlega tímamót. Nú vitum við hversu einfalt mál það er að virkja 44. gr. til að taka á móti fólki í neyð. Fordæmið er skýrt. Það er hægt að gera fólki auðvelt fyrir að flýja til Íslands og hljóta hér vernd frá stríði í heimalandi sínu, a.m.k. ef það er pólitískur vilji fyrir því okkar megin. Spurningin er þá sú: Hvers vegna fyrst núna? Hvers vegna hafa viðbrögð af þessu tagi látið á sér standa þegar kemur að ástandinu í Sýrlandi, svo dæmi sé nefnt? Þar hefur stríðsástand verið viðvarandi í ríflega áratug en þrátt fyrir það hefur aldrei komið til þess að 44. gr. hafi verið virkjuð og við Íslendingar réttum Sýrlendingum svo ótvíræða og örugga hjálparhönd sem Úkraínumenn fá nú. Hið sama má segja um Afganistan og Írak. Hver er röksemdafærslan? Hvers vegna erum við svo skjót að bregðist við nú þegar ráðist er á Úkraínumenn en á sama tíma svo treg til þess þegar kemur að öðrum þjóðum þar sem stríð stendur yfir? Þingið og þjóðin ætti nefnilega taka þessum tímamótum mjög alvarlega sem hæstv. dómsmálaráðherra talar um. Þau sanna það að móttaka flóttafólks og framkomu okkar gagnvart því snýst á endanum ekki um neitt annað en pólitískan vilja. Við getum gert mun meira, lagt mun meira af mörkum en ráðafólk kýs að gera það ekki.
Í þriðja lagi þykir mér mikilvægt að velta því upp hvernig við getum veitt rússnesku fólki vernd sem talað hefur gegn rússneskum yfirvöldum og er því ekki öruggt í sínu heimalandi. Sér ríkisstjórnin fyrir sér að hjálpa þessu fólki sem er líka í neyð? Ef ríkisstjórnin telur ekki tilefni til þess er eðlilegt að spyrja hvað hún telur vera nægjanlega neyð. Rússnesk stjórnvöld grafa linnulaust undan gildum sem Íslendingar vilja standa fyrir; virðingu fyrir mannréttindum, tjáningarfrelsi, virku lýðræði, og þau þjarma að margvíslegu frelsi fólks til athafna og mannlegrar reisnar. Allt stríðir þetta gegn utanríkisstefnu stjórnvalda og því ekki nema eðlilegt að spyrja hvort það væri ekki einmitt í anda utanríkisstefnunnar að koma óbreyttum Rússum til aðstoðar. Þetta eru hræðilegir tímar og mikilvægt að reyna að hjálpa eftir fremsta megni, enda höfum við alla burði til þess. Við ættum að beita okkur fyrir því að veita fólki vernd gegn ofsóknum sem mótmælir aðgerðum rússneskra stjórnvalda, rétt eins og við veitum flóttafólki frá Úkraínu vernd.
Eins og ráðamenn hafa ítrekað minnst á síðustu daga þá eru Íslendingar herlaus þjóð og blessunarlega er lítill vilji bæði á þinginu og hjá þjóðinni til þess að breyta því og við munum því ekki flytja vopn á vígstöðvarnar, en við getum fært von og mannúð í stað morðtóla, hjálp í stað hergagna. Enginn sem flýr vopnuð átök gerir það að gamni sínu. Það eru þung skref að yfirgefa allt sem þú þekkir, fjölskyldu, vini og nærumhverfi þitt. Það er ekki nema von að flest sem flýja vilji halda aftur heim þegar stríðsöxin hefur verið grafin. En þangað til eigum við að gefa þessu fólki hugarró, taka á móti því og gefa því færi á að gefa af sér til íslensks samfélags. Það er það minnsta sem við, herlausa þjóðin fjarri vígvellinum, getum gert.
Að lokum vil ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir að hefja þessa umræðu og fyrir góð samskipti við þingheim frá upphafi átakanna. Á tímum sem þessum skiptir lykilmáli að ríkisstjórnin tali skýrt og miðli upplýsingum um jafnt innan sem utan veggja Alþingis. Að sama skapi þakka ég fyrir afdráttarlausa afstöðu stjórnvalda gegn hernaðarbrölti Pútíns og vona að þessi tónn sé það sem koma skal frá stjórnvöldum í átökum framtíðarinnar, sama hvort þau eru í Evrópu eða annars staðar á hnettinum.