152. löggjafarþing — 47. fundur,  7. mars 2022.

staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.

[18:38]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það mál sem við ræðum hér í dag er af þeim toga að nær ógerningur er að ná utan um það í umræðu sem þessari. Þeir hlutir sem gerast í Úkraínu eru með þeim hætti að engin leið er fyrir okkur sem hér erum inni að gera okkur í hugarlund þær aðstæður og þá angist sem íbúar þessa lands búa við. Við sjáum á tímum sem þessum hversu dýrmætt það er að búa við öryggi og frelsi til athafna og skoðana, frelsi sem okkur ber að standa vörð um hérlendis og styðja við baráttu ríkja annars staðar í heiminum sem krefjast hins sama. Á Íslandi er ekki gefinn afsláttur af mannréttindum og sá stuðningur sem íslensk stjórnvöld hafa nú þegar heitið til mannúðar- og hjálparstarfa á og við landamæri í Úkraínu skiptir máli sem og stuðningur Íslands við þær refsiaðgerðir sem settar hafa verið á Rússland. Það er mikilvægt að við fylgjumst með öðrum vestrænum þjóðum í þeim aðgerðum og sýnum þar með þá samstöðu í verki og fordæmum þær ólögmætu hernaðaraðgerðir sem rússnesk stjórnvöld stunda í Úkraínu.

Staðan í Úkraínu er skelfileg og versnar með hverjum deginum sem líður og í raun með hverjum klukkutíma. Talið er að um 1,5 milljónir manns hafi nú þegar flúið yfir landamæri til nágrannaríkjanna, flestir til Póllands en einnig til Moldóvu, Rúmeníu, Ungverjalands og Slóvakíu. Áætlað er að flóttamannastraumurinn geti orðið allt að 4 milljónir og þeir sem muni þurfa aðstoð verði um 12 milljónir. Til samanburðar má nefna að þegar flóttamannastraumurinn var sem mestur frá Sýrlandi árið 2015 var talað um mesta flóttamannastraum í Evrópu frá síðari heimsstyrjöldinni og var heildartala flóttamanna allt árið 2015 um 1,5 milljónir, sama tala og fyrstu tíu daga stríðsins í Úkraínu. Tölur um manntjón eru á reiki en ljóst að þau mannslíf sem hafa glatast í þessum átökum eru talin í þúsundum og fer talan hækkandi eftir því sem stríðið dregst á langinn. Í stríðum eru það almennir borgarar sem fara verst út úr átökum, almennir borgarar sem varnarlausir bíður örlaga sinna eða reyna að flýja þær aðstæður sem aðrir hafa skapað og er óljóst hver tilgangurinn er með slíkri grimmd eins og þarna er iðkuð. Fréttir berast nú af því að skotið sé á almennar íbúðabyggingar, skóla og sjúkrahús. Mikilvægir innviðir, svo sem rafmagn og neysluvatn, eru víða ónothæfir og matvæli af skornum skammti.

Það er mikilvægt að átta sig á því að þeir sem komast yfir landamærin eru aðallega konur og börn þar sem herkvaðning gildir um alla karlmenn sem eru á aldrinum 16 til sextugs og eru þeir skikkaðir til að berjast. Þeir sem eru sjúkir og eiga erfitt með að ferðast eru skildir eftir sem og eldri borgarar og þeir sem eru fatlaðir, einstaklingar sem á engan hátt geta varið sig gegn þeim ógnum sem við þeim blasir. Það er gríðarlega mikilvægt að alþjóðasamfélagið, og þar með talið Ísland, gleymi ekki þessum hópum enda um að ræða þá einstaklinga sem á hvað mestri aðstoð og vernd þurfa að halda og margir hverjir háðir lífsbjargandi meðferðum sem erfitt er að sinna sökum skorts á lyfjum, læknisaðstoð eða hreinlega rafmagni og hreinu vatni. Því miður eru þetta staðreyndir sem fylgja hernaðarátökum og hafa gert alla tíð, en þessum hópum má ekki gleyma, virðulegur forseti.

Hvernig verða næstu dagar? Það er ekki ætlun mín hér að vera með spár um framtíð þessara átaka eða hvert þau munu leiða okkur; það eru margir færari og betur til þess fallnir en sá sem hér stendur. Það er hins vegar ljóst að átökin munu halda áfram og þau munu harðna. Áætlað er að um 80.000 einstaklingar hafi snúið aftur til Úkraínu til að taka upp vopn og berjast fyrir heimalandinu sem og að fréttir hafa borist af því að hermenn í Danmörku, Tékklandi og Bretlandi hafa fengið leyfi til að fara og taka þátt í átökunum án þess að vera refsað fyrir það við heimkomu. Íbúar nærliggjandi landa vopnvæðast nú sem aldrei fyrr og ljóst að ótti um hvaða verði er mikill um alla Evrópu og sér í lagi í þeim löndum sem landamæri eiga að Úkraínu, Hvíta-Rússlandi og Rússlandi og þeim ríkjum sem áður voru innan járntjalds Sovétríkjanna. Mikið magn vopna hefur borist Úkraínumönnum frá löndum Evrópu og Bandaríkjunum sem munu hafa gagnast Úkraínumönnum í að halda aftur af sókn Rússa í landinu. Sjá má breytingar á stóra sviði alþjóðastjórnmálanna þar sem meiri hluti íbúa Finnlands og Svíþjóðar telur nú að það komi til skoðunar að ganga í NATO. Sviss, sem hingað til hefur verið hlutlaust og ekki tekið þátt í hernaðaraðgerðum og er utan hernaðarbandalaga, tekur þátt í refsiaðgerðum gegn Rússum og Þjóðverjar hafa ákveðið að efla varnir sínar og talað opinskátt um það en slíkt hefur verið mikið feimnismál í Þýskalandi frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Óhætt er að segja að öll ríki Evrópu hugi nú að vörnum sínum og ljóst að við Íslendingar verðum að gera slíkt hið sama. Það er barnaskapur að hugsa að við séum ónæm, að ekkert geti nokkurn tímann gerst hér, að við séum svo langt í burtu eða svo lítil að við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur, þetta muni ekki snerta okkur á neinn hátt. Við þurfum að taka upp umræðu um varnarmál okkar. Lega landsins er með þeim hætti að í því kalda stríði sem nú virðist vera að vakna upp af löngum dvala getum við ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að Ísland og lögsögu Íslands ber að verja. Ég er ekki að hvetja til hervæðingar með þessum orðum heldur einfaldlega að vekja máls á þeirri staðreynd að við þurfum að taka upp alvöruumræðu um varnarmál landsins.

Virðulegur forseti. Ljóst er að ekki eru allir íbúar Rússlands á sömu skoðun og forsetinn enda berast fregnir af mótmælum á götum úti í Rússlandi á hverjum degi, þrátt fyrir að fréttaflutningur af átökunum sé mjög ritstýrður af rússneskum yfirvöldum og svo virðist sem stór hluti rússneskrar alþýðu viti í raun og veru ekki hvað er um að vera í Úkraínu. Fréttir bárust af því í gær að um 5.000 einstaklingar hefðu verið handteknir í mótmælum í Rússlandi en taka má þeirri tölu með miklum fyrirvara eins og öðru sem kemur þaðan. Örlög þessa fólks eru nú á valdi stjórnvalda og getur beðið þeirra margra ára fangelsi fyrir það eitt að mótmæla ólögmætum stríðsrekstri eigin stjórnvalda í Rússlandi. Eins hefur mikill straumur verið út úr Rússlandi til nágrannaríkjanna þar sem ástandið er orðið slæmt, verðbólga há og vörur af skornum skammti og stjórnvöld búin að takmarka mikið af því sem áður þótti sjálfsagt og eðlilegt. Viðskipti við Rússa hafa verið stöðvuð, SWIFT-kerfinu lokað sem gerir öll alþjóðaviðskipti nær ómöguleg og rússneskum bankareikningum erlendis hefur verið lokað.

Íbúar Rússlands eru farnir að finna fyrir þeim þvingunum sem á þá hafa verið settir. Þær eru farnar að bíta. Það er mikilvægt í því ljósi að við gætum okkar í ræðu og riti. Þó svo að forseti Rússlands og ráðgjafar hans hafi vilja til þess að halda stríðsrekstri áfram í Úkraínu þá er það ekki þannig að það sé vilji allra íbúa landsins. Við megum ekki og eigum ekki að dæma eina þjóð fyrir gjörðir fárra.

Það er ljóst að stríðsátökin í Evrópu munu hafa efnahagsleg áhrif á okkur Íslendinga með beinum og óbeinum hætti. Það er nú þegar ljóst að áhrifanna mun gæta í sjávarútvegi þar sem Úkraína er stórt viðskiptaland er kemur að uppsjávarafurðum og fiskafurðir hafa verið seldar til þriðja ríkis og þaðan inn á Rússamarkað og til Úkraínu. Áætlað er að um sé að ræða 3,5 milljarða í beinni sölu en óljóst er með sölu til þriðja ríkis. Ljóst er þó að um verulegar upphæðir er að ræða. Einnig hafa íslensk tæknifyrirtæki verið að selja inn á þessa markaði og þá aðallega til fyrirtækja í sjávarútvegi. Þeim mörkuðum hefur einnig verið lokað. Verð á áburði og korni hefur hækkað gríðarlega og ekki er séð fyrir endann á þeim hækkunum sem munu koma illa niður á íslenskum bændum og hækka matarverð til neytenda. Helmingur íbúa jarðar fær mat þökk sé áburði og ef það er fjarlægt mun uppskera í sumum tilfellum minnka um helming. Rússland og Úkraína eru á meðal stærstu útflytjenda heims á landbúnaðarvörum og matvælum og Rússar framleiða mikið magn af grunnhráefnum sem þarf við framleiðslu áburðar. Það er því ljóst að ef lokað er á þessa markaði mun framleiðsla á matvöru dragast saman sem getur leitt til skorts á matvöru og verulegra hækkana á matarverði. Það er því mikilvægt og sennilega aldrei mikilvægara en nú að við hugum að fæðuöryggi Íslands og sjálfbærni landsins. Við þurfum að efla stuðning við íslenska matvælaframleiðslu þannig að við séum sjálfum okkur næg er kemur að fæðu fyrir íslensku þjóðina. Slíkt er afar brýnt nú og við erum í kjörstöðu í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að því að tryggja þjóðinni þær grunnnauðsynjar sem felast í matvælum og neysluvatni. Þar þurfa stjórnvöld að stíga sterkt inn og efla frekar íslenska matvælaframleiðslu. Við þurfum að byrja í dag.

Virðulegur forseti. Ég ætla að enda ræðu mína á málefni sem mér er afar hugleikið en það er móttaka flóttafólks frá Úkraínu. Nú þegar íslensk stjórnvöld hafa virkjað 44. gr. laga um útlendinga samhliða því að Evrópusambandið virkjaði verndar- og neyðaráætlun sína, sem aldrei fyrr hefur verið virkjuð, ekki frekar en 44. gr. útlendingalaga, er ljóst að við getum átt von á miklum fjölda hingað til lands frá Úkraínu. Úrræðið veitir vernd til þriggja ára og áætlanir gera ráð fyrir því að um 1.500 einstaklingar muni koma hingað í leit að öryggi og skjóli. Það er jafnframt ljóst að sú tala sem hér hefur verið nefnd er ágiskun, gæti orðið lægri en einnig hærri, allt eftir því hvernig átökunum mun vinda fram. Það skiptir máli hvernig við leysum þetta verkefni okkar. (Forseti hringir.) Íslensk stjórnvöld verða dæmd af því í ljósi sögunnar hvernig til tókst. Við eigum að sýna mannúð og manngæsku á tímum sem þessu og stuðningur íslenskra stjórnvalda, íslensku þjóðarinnar, skiptir máli. Það er þannig að þó við séum ekki stór þjóð (Forseti hringir.) á mælikvarða heimsins þá höfum við sýnt að það getur skipt máli þegar á reynir að rödd Íslands heyrist. Það er mikilvægt, virðulegur forseti, að rödd Íslands heyrist nú, mikilvægara en oft áður.