staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka utanríkisráðherra fyrir framgöngu sína, upplýsingagjöf og einarða afstöðu í tengslum við fólskulega innrás Rússlands í Úkraínu. Það er líka gott að finna einhuginn hér á þingi. En staðreyndin er sú að á Alþingi Íslendinga eru utanríkismál of sjaldan rædd og enn sjaldnar af þeirri dýpt sem ætla mætti og þörf er á og það er miður og við þurfum að breyta því. Lærdómurinn er sá að við þurfum að treysta enn frekar stöðu okkar meðal þjóða sem deila með okkur lífsviðhorfum og gildum, um lýðræði, frelsi og mannréttindi. Í því felst sú sterkasta vörn fyrir fullveldið okkar sem kostur er á. Ég er þeirrar skoðunar að farsælast væri fyrir íslenska þjóð að öðlast fulla aðild að Evrópusambandinu. Sú skoðun grundvallast sannarlega ekki eingöngu á þeirri ógn sem okkur stafar nú af rússneskum stjórnvöldum en það er ekki hægt að horfa fram hjá því hversu þunginn á sviði öryggis- og varnarmála hefur aukist mikið hjá Evrópusambandinu, því miður ekki að ástæðulausu. Full aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi treysta pólitíska stöðu okkar og mikilvæga hagsmuni, rétt eins og aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu gerir. Og það er auðvitað ekki tilviljun að hér er að stórum hluta um sömu þjóðir að ræða, friðsamar þjóðir sem við eigum samleið með. Ég verð að segja það hér að það er hræsni, fullkomin hræsni, að tala hér eins og við séum ein þjóða áhugasöm um að búa við frið.
Herra forseti. Það er kannski í takt við litla áherslu á utanríkismál hvað íslensk stjórnvöld tóku seint við sér í aðdraganda innrásar Pútíns í Úkraínu en sem betur fer hafa þau nú stigið sterk inn með afdráttarlausri fordæmingu og stuðningi við þvingunaraðgerðir. Rússnesk yfirvöld hafa brugðist við á fyrirsjáanlegan hátt og settu Ísland á lista yfir óvinaþjóðir. Ég veit ekki hversu slæmt það er. Við sjáum nú daglega hvernig rússnesk yfirvöld fara með vinaþjóð sína, með frændur sínar.
En hugrekki úkraínsku þjóðarinnar er aðdáunarvert. Hún þarf hins vegar annað og meira en aðdáun frá okkur. Hún þarf tafarlausa aðstoð og við þurfum að láta verkin tala hér á landi, innan Úkraínu og víðar. Ef þvingunaraðgerðir eiga að duga til að stöðva óheillaför Pútíns Rússlandsforseta þá þarf að stíga fastar á bremsuna. Afleiðingarnar munu verða íþyngjandi fyrir fjölda fólks, þar með talið okkur hér á landi, fyrir fyrirtæki og fyrir heimili. Það er þó léttvægur kostnaður miðað við það að búa í heimi sem Pútín Rússlandsforseti fær óáreittur að sprengja í tætlur. Við getum ekki látið það viðgangast og okkur ber að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir það. Við munum ná þeim árangri best í för með vinaþjóðum okkar og frændþjóðum sem deila með okkur gildum sem eru okkur lífsnauðsynleg sem sjálfstæðri, fullvalda þjóð; lýðræði, mannréttindi, frelsi.