staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Fyrir rétt rúmum mánuði var vinkona mín frá Úkraínu í heimsókn hjá mér hér á Íslandi með manninum sínum. Á þeim tíma var vissulega ólga og blikur á lofti, en þegar þau kvöddu höfðum við áform um að ég kæmi jafnvel að heimsækja þau og börnin þeirra tvö í Lviv í sumar. Nú, mánuði seinna, er staðan gjörbreytt. Síðan innrás Rússlands hófst hafa 38 börn dáið, 71 barn hefur slasast. Börn fæðast inn í þetta ófriðarástand og óöruggar kringumstæður. Innviðir liggja niðri. 211 skólar hafa orðið fyrir eyðileggingu og eru óstarfhæfir. Yfir milljón manns hefur þegar flúið land. Önnur, líkt og vinkona mín og hennar fjölskylda, eru staðráðin í því að vera í Úkraínu þangað til friður kemst á á ný. Bæði hópurinn sem er á flótta og hópurinn sem eftir situr þarf stuðning alþjóðasamfélagsins, þá sérstaklega í formi mannúðaraðstoðar, bæði innan landamæra Úkraínu sem utan.
Í ljósi ummæla nokkurra hv. þingmanna minni hlutans um friðarstefnu VG finnst mér vert að minna á að það segir skýrt í stjórnarsáttmála, gildandi og hinum fyrri, að ríkisstjórnin vinni á grundvelli þjóðaröryggisstefnu. Óháð því hversu lengi stríðið mun vara er ljóst að þetta verður langtímaverkefni og mun hafa víðtæk áhrif á samfélagið í Evrópu og víðar.
Í því samhengi vil ég tala um fæðuöryggi. Við vitum að hungur og átök tengjast þéttum böndum og eitt fylgir oft öðru. Langvarandi átök í Úkraínu eru líkleg til að hafa mikil áhrif á framleiðslukeðjur á alþjóðavísu. Samkvæmt Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur fjöldi þeirra sem búa við fæðuóöryggi aukist úr 135 milljónum í 283 milljónir síðan 2019. Þessa aukningu má að hluta til rekja til áhrifa heimsfaraldurs á framleiðslukeðjur. Innrás Rússlands hefur nú þegar haft áhrif á aðgengi á nauðsynjum innan og utan landamæra Úkraínu. Til að mynda er skortur á matvælum og drykkjarvatni bæði í Kænugarði og Khrakiv. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur nú þegar svarað kallinu og sinnir mannúðar- og mataraðstoð innan og utan Úkraínu og þörfin er mikil. Það er líka líklegt að þetta hafi áhrif á fæðuöryggi handan landamæra Úkraínu, sérstaklega á fátækustu ríki heims. Löndin í kringum Svartahaf eru eitt mikilvægasta svæði heimsins fyrir til að mynda kornrækt og framleiða um 12% af framleiddum kaloríum á heimsvísu. Eftir örfáar vikur þurfa bændur á sléttum Úkraínu að setja niður korn ef þeir eiga að ná uppskeru næsta sumar og haust. Það er ljóst að það hvernig þróun þessara mála verður mun hafa mikil áhrif.
Úkraína flytur um 40% af framleiðslu sinni á hveiti og korni til Miðausturlanda og Afríku. Þetta eru svæði þar sem víða er þegar skortur á matvælum og aukin skortur og hækkað verð gæti valdið auknum átökum þar. Stríðshrjáð lönd á borð við Jemen eru líkleg til að þjást hvað mest ef tafir verða í framleiðslukeðjum og á útflutningi matvæla frá Úkraínu vegna innrásar Rússlands. Það er gríðarlega mikilvægt að gerðar séu áætlanir um hvernig hægt verði að sporna við matarskorti og að hægt verði að bregðast skjótt við ef truflun í framleiðslukeðjum raungerist.
Þetta tengist auðvitað baráttunni við loftslagsvá. Eins og komið hefur á daginn, bæði í heimsfaraldri og nú í ljósi stríðsátaka í Evrópu, er fæðuöryggi víða ógnað. Loftslagsbreytingar munu í auknum mæli valda uppskerubresti, sérstaklega á nú þegar viðkvæmum svæðum þar sem þær grafa undan fæðuöryggi sem stendur jafnvel þegar á völtum fótum. Orkuskiptin eru einnig meira aðkallandi en nokkru sinni. Það er ljóst að það að vera upp á jarðefnaeldsneyti komin skapar óöryggi og víða í Evrópu er kallað eftir hraðari aðgerðum í átt að sjálfbærum orkugjöfum.
Frú forseti. Við þurfum að bregðast við þessum stóru áskorunum með samhæfðum aðgerðum og þá meina ég bæði milli ríkja og milli málaflokka. Heimsfaraldur og stríð hafa samverkandi áhrif á loftslagsbreytingar og allt hefur þetta afleiðingar fyrir fæðuöryggi heimsins.