staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir að færa Alþingi skýrslu um stöðuna í Úkraínu, verkefni okkar sem leiða af því hræðilega ástandi sem innrás Rússa hefur skapað. Mig langar að ræða tvennt. Annars vegar þarf að vera alveg á hreinu hvernig við ætlum okkur að taka á móti fólki á flótta. Mun duga því að sækja um vernd og framvísa skilríkjum eða þarf eitthvað meira til? Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra fullyrti hér fyrr í dag að þar sem hæstv. dómsmálaráðherra hefði virkjað 44. gr. útlendingalaga færi engin eiginleg efnismeðferð fram við umsókn heldur fengju allir ríkisborgarar Úkraínu sjálfkrafa vernd.
Nú erum við að skoða hvernig er með ríkisborgara annarra ríkja sem flýja nú Úkraínu, íbúa sem hafa mögulega verið búsettir í Úkraínu árum og áratugum saman. Munu þau njóta sömu réttinda hér á landi og þau sem hafa úkraínsk vegabréf? Eða munum við gera þessu fólki að fara til annarra ríkja sem þau hafa mögulega flúið sjálf undan stríðsrekstri eða annars konar ofsóknum? Við verðum að átta okkur á því að árið 2020 voru 5.000 flóttamenn frá Sýrlandi, Rússlandi og Bangladess búsettir í Úkraínu. 35.000 ríkisfangslausir íbúar bjuggu þar og 60.000 íbúar af erlendum uppruna, mestan part vel menntaðir ungir menn sem fengu þar dvalarleyfi vegna náms og starfa. Þá er alveg ljóst að fjöldi fólks sem búsett er í Úkraínu á ekki vegabréf og því alls óvíst hvernig þetta fólk á að koma sér úr landinu.
Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sagði sömuleiðis í dag að allir sem fengju hér vernd fengju sömuleiðis atvinnuleyfi. Það er mjög afdráttarlaust og til eftirbreytni, enda fengum við fregnir af því í síðustu viku að einkageirann einan og sér hér á landi vanti a.m.k. 12.000 manns í vinnu. Þá má ætla að nokkur þúsund manns vanti í opinbera geirann. Með öðrum orðum, þeir sem óttast að við ráðum ekki við verkefnið, að búa hér flóttafólki skjól, ættu að fagna, því að við þurfum fleira fólk.
Svo er annað sem mig langar að vekja máls á í dag, en það er staða fjölmiðla í Rússlandi og sú upplýsingaóreiða sem rússnesk stjórnvöld standa fyrir þar í landi nú þegar Pútín lætur loka hverjum fjölmiðlinum á fætur öðrum. Blátt bann hefur verið sett á að nota orðið innrás þegar fjallað er um stríðsrekstur Rússa í Úkraínu og fréttaflutningur í þessu gríðarstóra landi af málefnum Úkraínu og stríðsrekstri Pútíns þar er af mjög skornum skammti, ef einhver. Því spyr ég að lokum: Geta bandalagsþjóðirnar gert eitthvað til að upplýsa almenning í Rússlandi? Eigum við einhver ráð?