staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Við horfum með hryllingi til stríðsins í Úkraínu og enginn er óhultur fyrir stríðsvél Pútíns Rússlandsforseta; konur, börn, kornabörn og aldraðir eru drepnir með köldu blóði. Hugur okkar og hjarta eru með þeim fjölmörgu sem nú eiga um sárt að binda í Úkraínu. Tilgangsleysi þessa stríðs er algjört. Friðsæl þjóð, sem hefur ekkert til saka unnið, þarf skyndilega að berjast fyrir lífi sínu og tilverurétti. Andspyrnu- og baráttuvilji Úkraínumanna er aðdáunarverður.
Stríð valdhafa í Rússlandi gegn Úkraínu er stríð gegn Evrópu, stríð gegn lýðræði og mannréttindum. Þess vegna mega Vesturlönd aldrei bregðast Úkraínu. Aldrei. Ábyrgð þeirra er mikil. Valdhafinn og einræðisherrann Pútín lýgur að eigin þjóð og alþjóðasamfélaginu og honum má aldrei takast að sundra samstöðu Vesturlanda og leggja Úkraínu undir sig. Hótanir Pútíns um beitingu kjarnorkuvopna sýna veruleikafirringu sem forsetinn er haldinn og hættuna sem öll heimsbyggðin stendur nú frammi fyrir.
Nú þegar stríðsrekstur Rússa gengur ekki eins og ráð var fyrir gert eykst hættan á því að Pútín grípi til örþrifaráða og sú hætta er raunveruleg. Alþjóðlegar efnahagsrefsingar gegn Rússum verða að vera mjög harkalegar. Þar duga engin vettlingatök. Mikið er í húfi. Herveldi sem ræðst inn í sjálfstætt og fullvalda ríki í Evrópu, og ógnar þar með friði í allri álfunni, er herveldi sem enginn getur treyst. Næst gætu það verið Eystrasaltslöndin.
Stríðið í Úkraínu sýnir fram á mikilvægi NATO og sannar tilgang þess sem varnarbandalags. Gjörbylting hefur orðið í öryggismálum í Evrópu á skömmum tíma. Nú sem aldrei fyrr þarf Ísland að standa við skuldbindingar sínar gagnvart NATO og tryggja að hér sé ávallt til staðar sú aðstaða fyrir varnarviðbúnað sem gæti skipt sköpum á örlagastundu. Gleymum því ekki að Rússar voru fyrir skömmu með heræfingar undan ströndum Írlands í óþökk Íra. Hvaða viðbrögð verða í þessum sal á hinum pólitíska vettvangi, við kröfunni um aukinn varnarviðbúnað Íslands, á eftir að koma í ljós. Engin leið er að sjá fyrir hvernig atburðarásin verður næstu daga í Úkraínu. Miklar líkur á því að örlagastund muni brátt renna upp, upphafið að endalokum Úkraínu sem frjáls og fullvalda ríkis gæti verið á næsta leiti. Það má hinn frjálsi vestræni heimur aldrei sætta sig við. Atburðarásin í Úkraínu verður ekki stöðvuð með orðum, orðum verða að fylgja efndir.
Heimsbyggðin hefur sýnt það og sannað að hún getur staðið saman gegn sameiginlegri ógn. Samstaða þjóða gegn veirufaraldrinum sýndi það og sannaði. Núverandi stjórnvöld í Kreml eru óvinur friðar og stöðugleika í heiminum. Þjóðir heims verða að standa saman gegn gerræði ógnarstjórnar Pútíns. Veita á Úkraínu hraðferð inn í Evrópusambandið á örlagastundu, þegar framtíð Evrópu er í húfi má aldrei hika. Ég vona svo sannarlega að rússneskur almenningur rísi upp gegn stjórnvöldum í Kreml og dagar Pútíns stjórnarinnar heyri brátt sögunni til. Almenningur í Rússlandi vill ekki stríð.
Herra forseti. Ég vil nota tækifærið og biðja Íslendinga að dæma ekki þá Rússa sem eru búsettir hér á landi. Þeir hafa ekkert til saka unnið og þeir þjást yfir stríðinu. Því miður hafa þeir orðið fyrir aðkasti, skemmdarverk voru unnin á kirkju rússneska rétttrúnaðarsafnaðarins hér í Reykjavík og við fordæmum allt slíkt ofbeldi.
Í gær sótti ég sameiginlega bænaguðsþjónustu ólíkra kirkjudeilda í Háteigskirkju þar sem beðið var fyrir friði í Úkraínu. Athöfnin var vel sótt og þar voru m.a. samankomnir Úkraínumenn og Rússar búsettir hér á landi. Ber að þakka fyrir þetta framtak þjóðkirkjunnar.
Að lokum, herra forseti, vil ég segja: Megi guð forða okkur frá því að birtingarmynd þriðju heimsstyrjaldarinnar sé handan við hornið.