staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Á stundum sem þessum verður manni orða vant því að það er á engan hátt hægt að gera sér grein fyrir þeim hörmungum sem dynja á saklausu fólki í Úkraínu, fólki sem hefur ekki neitt til saka unnið annað en að vera á röngum stað á röngum tíma. Í gær mátti lesa um unga fjölskyldu sem lét lífið í sprengjuárás þar sem hún beið eftir lest til að flýja heimili sitt, vini og fjölskyldu. Manni þykir napurt að lesa um það að einu flóttaleiðirnar sem Rússar bjóða upp á liggi til Rússlands og Hvíta-Rússlands, landa sem íbúar Úkraínu vilja forðast í lengstu lög.
Stríð í þessum heimshluta var í flestra huga fjarlægt og við vorum á engan hátt undir það búin að sjá það verða að veruleika á þessum tímapunkti. Nú er staðan sú að við okkur blasir mesti flóttamannastraumur sem við höfum upplifað. Milljónir manna eru á vergangi. Leið þeirra liggur til annarra landa Evrópu sem þurfa að vinna hratt og skipulega til að geta tekið við þessum mikla fjölda. Nærliggjandi lönd eins og Pólland geta ekki tekið við öllum þessum hópi sem þangað er komin og mun flýja þangað á meðan þetta stríð geisar. Því skiptir samstaða Evrópu miklu máli og maður fyllist stolti við að upplifa þá miklu samstöðu og eindrægni sem komið hefur í ljós innan Evrópu. Við hér á Íslandi þurfum einnig að leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að búa þeim sem hingað leita eins bærilegar aðstæður og hægt er að veita. Sveitarfélög þurfa að leggjast á árarnar við að taka við fólki. Það eru því miður einungis þrjú sveitarfélög sem eru með samning um þjónustu við flóttafólk og brýn nauðsyn að breyta því. Íslendingar kunna svo vel að bregðast við óvæntum aðstæðum og við eigum að nýta okkur það nú þegar fyrir liggur að við getum vænst þess að verulegur fjöldi fólks í neyð muni leita hingað.
Virðulegur forseti. Nú hafa Rússar sett okkur Íslendinga á lista yfir óvinveitt ríki og það ætti að kalla á endurskoðun á öllu okkar samstarfi, bæði innan Evrópu og eins á varnarsamstarfinu við Bandaríkin. Staðan í heiminum er gjörbreytt.