staðan í Úkraínu, munnleg skýrsla utanríkisráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Á sama tíma og það hefur verið sársaukafullt að fylgjast með úkraínsku þjóðinni þjást vegna óverjandi árásar Rússa hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með samstöðunni sem víðast hvar ríkir. Sú samstaða er blessunarlega ákaflega sýnileg hérna á Íslandi en það er hins vegar ekkert sjálfgefið að svo verði áfram. Þetta stríð getur geisað lengi og það er sorgleg staðreynd að athyglin vill færast annað þegar átök dragast á langinn. Þjáningin verður fjarlægari þótt hún sé enn nístandi og raunveruleg hjá þeim sem fyrir ofbeldinu verða. Með öðrum orðum, í þessu ömurlega stríði reynir ekki bara á úthald úkraínsku þjóðarinnar heldur einnig okkar Íslendinga og annarra þjóða að sjálfsögðu líka þótt með öðrum hætti sé.
Það liggur fyrir að við tökum á móti fjölda flóttamanna frá Úkraínu, ekki af tómri skyldurækni heldur vegna þess að við finnum til með fólki og höfum með því samkennd. Ég vona heitt og innilega að í fyllingu tímans hefjist ekki sá kunnuglegi og ómanneskjulegi söngur að við Íslendingar eigum nóg með okkur sjálf, að það sé óboðlegt að verja fjármunum í fólk á flótta á sama tíma og hópur Íslendinga búi við fátækt. Við megum ekki missa umræðuna í þessa nauðhyggju að eitt útiloki annað og að samúð okkar og mennska sé skilyrt við íslenskt vegabréf, að við etjum saman hópum sem eiga um sárt að binda. Það er annar pyttur sem við þurfum nauðsynlega að sneiða hjá. Í þeim fúla pytti skipta peningar og fjárhagslegir hagsmunir mestu. Það er óhjákvæmilegt að Ísland verði fyrir efnahagslegum áhrifum vegna stríðsins. Það mun glögglega sjást hjá ákveðnum atvinnugreinum og hjá ákveðnum fyrirtækjum. Eftir að Rússar hertóku Krímskaga þá molnaði of fljótt undan samstöðunni. Þá fóru fjárhagslegir hagsmunir stórra sjávarútvegsfyrirtækja að hafa áhrif og þess var krafist úr þeirri átt að við hættum að beita Rússa viðskiptaþvingunum. Þær raddir náðu síðan talsverðu flugi innan ríkisstjórnarflokkanna á þeim tíma, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Gunnar Bragi Sveinsson var þá utanríkisráðherra og stóð í lappirnar, m.a. með eftirfarandi orðum, með leyfi forseta:
„Það er bara þannig að við getum ekki látið prinsippafstöðu víkja fyrir stundarhagsmunum, þó þeir séu verðmiklir. Við erum smáríki og leggjum okkar upp úr því að alþjóðlegir sáttmálar og samningar haldi.“
Raunveruleikinn er nefnilega sá að ef við erum ekki tilbúin að færa fórnir og leggja okkar af mörkum, af hverju ættu þá önnur ríki að færa fórnir fyrir okkur og verja okkar hagsmuni ef á reynir? Við eigum einfaldlega allt undir því að stærstu ríki veraldar virði sjálfstæði annarra þjóða. Það er óskandi að hæstv. utanríkisráðherra standi líka í lappirnar ef fer að bera á þrýstingi frá sömu öflum og síðast. Hæstv. ráðherra á þakkir skildar fyrir skýrar yfirlýsingar frá upphafi stríðs og mikinn vilja til upplýsingagjafar til þingsins. Ráðherra og við öll þurfum hins vegar að gæta þess að fjárhagslegir hagsmunir einstakra fyrirtækja skipti ekki meira máli en fullveldishagsmunir þjóðarinnar eða að krónur og aurar séu okkur meira virði en samkennd með ofsóttri þjóð.