um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Þetta mál er ákveðinn prófsteinn á Alþingi vegna þess að Alþingi á að heita löggjafarvaldið á Íslandi. Samkvæmt lögum sem Alþingi setti sjálft fer Alþingi með veitingu ríkisborgararéttar samkvæmt lögum. Samkvæmt þessum sömu lögum sem Alþingi hefur sett ber Útlendingastofnun að skila umsögn til þingsins til að vinna megi þessar umsóknir. Með því að meiri hluti þessa þings og forseti Alþingis leyfi Útlendingastofnun og ráðherra að ganga gegn þessum skyldum þá er Alþingi að leyfa framkvæmdarvaldinu að brjóta lög sem Alþingi hefur sett. Hver á að taka mark á þingi sem tekur ekki einu sinni upp hanskann fyrir sjálfu sér þegar brotið er á verklagi sem þingið ákvað, þegar brotið er á lögum sem þingið setti um sína eigin vinnu? Hver á að taka mark á okkur (Forseti hringir.) sem löggjafarvaldi Íslendinga þegar við höfum ekki einu sinni sjálfsvirðingu til að standa (Forseti hringir.) uppi í hárinu á framkvæmdarvaldinu þegar það brýtur á okkur endurtekið?