um fundarstjórn.
Herra forseti. Faðmurinn er opinn, heyrist frá ráðamönnum þessa dagana í fordæmalausri samstöðu með fólki á flótta. Faðmurinn er opinn vegna þess að fólk tengir einhvern veginn við hörmungarnar sem eru að ganga yfir Úkraínubúa. En hvar er faðmurinn þegar kemur að því að afhenda Alþingi umsóknir fólks um ríkisborgararétt samkvæmt lögum? Þá er hann nefnilega dálítið lokaður, herra forseti. Af hverju eru þessir umsækjendur annars eðlis gagnvart stjórnvöldum en fólkið sem við stöndum með opinn faðminn gagnvart? Þetta er ekki fallegt, herra forseti, og það er ekki mannúðlegt að vera búin að teyma þetta fólk í ársfjórðung á asnaeyrum og það er ekki virðing gagnvart Alþingi að teyma þingið sjálft á asnaeyrum í ársfjórðung eins og hæstv. ráðherra hefur gert.