152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér aftur um ríkisborgararétt en því miður erum við ekki enn búin að afgreiða þær umsóknir sem bárust undir lok síðasta árs. Ef ég hef tekið rétt eftir erum við búin að fá umsagnir um liðlega helming þeirra umsækjenda sem sóttu um ríkisborgararétt til Alþingis og umsagna frá Útlendingastofnun um hinn hlutann er að vænta á næstu dögum og vikum. Ég get tekið undir það að þetta er of seint, þetta hefur tekið of langan tíma, þetta hefði þurft að koma mun fyrr. Eins og hv. allsherjar- og menntamálanefnd bókaði á sínum tíma vildum við vera búin að þessu fyrir 1. febrúar. Ég vænti þess að við séum að klára þetta en ég er jafnframt á þeirri skoðun að við þurfum að finna betra verklag. Mér heyrist vera hljómgrunnur fyrir því í nefndinni og við erum nú að vinna að því að skipa undirnefnd í allsherjar- og menntamálanefnd sem myndi koma með tillögu að breyttu verklagi svo að við lendum ekki aftur í þeirri stöðu sem við lentum í nú fyrir jól og höfum verið að glíma við á síðustu vikum.