um fundarstjórn.
Herra forseti. Það er rétt að hægt og rólega erum við að fá í hendurnar þau gögn sem Útlendingastofnun átti að vera búin að afhenda okkur í desember. Þau erum við að fá afhent á þeim hraða sem Útlendingastofnun þóknast. Þarna erum við að tala um umsóknir sem bárust fyrir 1. október síðastliðinn, sem var umsóknarfrestur fyrir desemberafgreiðslu þingsins á umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt. En hvað verður um umsóknir sem bárust eftir 1. október? Það veit enginn. Það veit enginn vegna þess að Útlendingastofnun hefur ákveðið að breyta sínu verklagi. Við bíðum í örvæntingu eftir restinni af þeim gögnum sem við vitum ekkert hvenær koma. Það er ekki hægt að segja til um það. Á meðan nefndin er að vinna að nýju verklagi eða endurskoða þetta ferli þá eru engar frekari umsóknir afgreiddar. Það er það sem ég á við þegar ég segi að ráðherra hafi með þessu tekist að kippa alþingisleiðinni úr sambandi. Fólk þarna úti sem ætlar að sækja um ríkisborgararétt til Alþingis í dag hefur ekki hugmynd um hvenær það á að gera það, hvernig (Forseti hringir.) eða hvort þessar umsóknir verði nokkurn tímann afgreiddar, enda er það mjög óljóst og óvíst.