um fundarstjórn.
Frú forseti. Þetta er algjört lykilatriði í störfum þingsins og þá hlutverk og ábyrgð forseta að fylgja á eftir. Hér segir hv. formaður allsherjar- og menntamálanefndar: Svo við lendum ekki aftur í sömu stöðu, svo þingið lendi ekki aftur í sömu stöðu. — Fyrirgefið, þingið lenti ekki í neinni stöðu, þingið var sett í þessa stöðu af ráðherra og Útlendingastofnun. Henni var troðið upp á okkur með því að ráðherra ákvað að láta ekki umsagnirnar og umsóknirnar berast til þingsins. Það var ákvörðun ráðherra, ekki þingsins. Þannig að þingið lenti ekki í þessa stöðu heldur var henni troðið upp á okkur. Það er forseta að sjá til þess að hægt sé að fylgja því verklagi eftir sem þingið er með og að ráðherra hlýði því, því að við erum nú einu sinni með þingbundið lýðræði.