um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég tek undir það sem komið hefur fram hér og skora enn einu sinni á hv. allsherjar- og menntamálanefnd, og þá undirnefnd sem þar starfar, að taka nú málið í sínar hendur og fylgja lögunum, auglýsa hreinlega eftir umsóknunum, fá þær allar hingað inn í hús. Það var fyrirkomulag sem var við lýði fyrir nokkrum árum, að maður sendi Alþingi umsóknirnar beint, og það hefur ekki orðið nein breyting á lögunum eftir það. Það var bara ákvörðun sem var tekin í ráðuneytinu. Það er Alþingis að klára þetta, það er lögbundið verkefni Alþingis. Nú verðið þið að standa í lappirnar gegn framkvæmdarvaldinu sem er að fara gegn lögum. Það er okkar hlutverk að gera það, að senda skýr skilaboð. Ekki láta beygja ykkur undir þetta ofríki, að svínbeygja lögin hvað þetta varðar.