152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:40]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég má til með að endurtaka og árétta það sem ég sagði áðan sem snýr að því að ef þingið stendur ekki í lappirnar þegar verið er að brjóta á skuldbindingum gagnvart þinginu, skuldbindingum sem eru lögfestar og skýrar — Útlendingastofnun skal útvega þau gögn sem þingið þarf að fá til að geta afgreitt þessar umsóknir og það er Alþingi sem fer með veitingu ríkisborgararéttar, hefur það veitingarvald. Það þing sem leyfir stofnun úti í bæ að hunsa lagaskyldur sínar gagnvart sér, það er ekki þing með sjálfsvirðingu. Af hverju á fólk að taka mark á lögunum sem við setjum ef við leyfum fólki að traðka á þeim lögum sem sett eru um okkar vinnu hér, sem við setjum um okkar eigin vinnu? Hér er verið að grafa undan sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu (Forseti hringir.) og við erum að missa sjálfsvirðinguna með þessu rugli.