152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

störf þingsins.

[13:44]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Herra forseti. Í dag er Alþjóðadagur kvenna 8. mars og óska ég konum um allan heim til hamingju með daginn. Jafnréttisbaráttan nær til allra sviða samfélagsins. Hvort sem við horfum til kynbundins ofbeldis, launamunar, á vinnumarkaðinn eða fjölskyldulíf eigum við víða langt í land. Mig langar að fjalla hér aðeins um einn afmarkaðan þátt er varðar stöðu kvenna í samfélaginu. Konur eiga oft og tíðum erfitt uppdráttar í heilbrigðiskerfinu, á þær er síður hlustað og kvensjúkdómar fá minna vægi en aðrir sjúkdómar. Komist var að þeirri niðurstöðu í stórri kanadískri rannsókn að konur sem voru skornar upp af karlkyns skurðlæknum væru 15% líklegri til að hljóta slæma útkomu miðað við konur sem voru skornar upp af kvenkyns skurðlækni. Sami munur kom ekki upp milli kyns læknis þegar útkomur karla voru skoðaðar. Konur undir fimmtugu voru líklegri til að deyja áratuginn eftir hjartaáfall en karlar. Mögulegar ástæður eru mismunandi meðferðir í kjölfar áfallanna. Í Bretlandi eru 28,1% botnlangaskurða kvenna óþarfir miðað við 12% hjá körlum. Talið er að hægt væri að lækka þessa tölu verulega með því að skoða fyrst aðrar orsakir, t.d. tíðaverki, blöðrur á eggjastokkum og fleira. Á dögunum féll frá ung kona sem ekki fékk áheyrn fyrr en of seint. Hún er ekki sú fyrsta og verður ekki sú síðasta. Í dag er Alþjóðadagur kvenna en jafnframt er þetta afmælisdagur Rótarinnar, félags um velferð og lífsgæði kvenna, sem fagnar níu ára afmæli. Við eigum að styðja við rannsóknir, heyra í konum og tryggja jafna og örugga heilbrigðisþjónustu óháð kyni.