152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

störf þingsins.

[13:55]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Innrás Rússa í Úkraínu hefur gjörbreytt stöðu heimsmála og þeim áskorunum sem Ísland stendur frammi fyrir og þessi stríðsátök og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til munu hafa langvarandi áhrif. Það er ljóst að Evrópuríkin verða að axla meiri ábyrgð á vörnum álfunnar. Flest þeirra hafa nú þegar stigið stór og táknræn skref í þá átt, Svíþjóð, Þýskaland, Danmörk, Finnland. En það er líka ákall um aukið samstarf Evrópuríkja í varnar- og öryggismálum, ekki bara Í NATO heldur einnig innan Evrópusambandsins.

Viðreisn mun leggja til þingsályktunartillögu þess efnis að stórefla þátttöku Íslands á sviði alþjóðamála, þar með talið innan Evrópusamstarfsins. Það er líklegt að varnar- og öryggismál fái aukið vægi innan Evrópusamvinnunnar, m.a. vegna áherslu Bandaríkjanna á önnur heimssvæði, eins og við þekkjum, eins og Asíu. Þess vegna teljum við nauðsynlegt að tryggja enn frekar öryggi Íslands með virkari þátttöku okkar í Evrópusamstarfinu og með fullri aðild að ESB. Þetta snýst ekki bara um eigið öryggi. Það er ekki síður mikilvægt að rödd okkar fái að heyrast og að við leggjum okkar af mörkum til að standa enn betur vörð um þau gildi sem við sjáum ógnað og það verulega í dag. Við þurfum að taka sterkari afstöðu með öðrum þjóðum og um leið afstöðu með okkar eigin hagsmunum með virkari þátttöku okkar á sviði alþjóðamála og ekki síst innan Evrópusambandsins.

Ég vil, af því að ég sé að ég á nokkurn tíma eftir, nýta tækifærið hér sérstaklega, herra forseti, og beina orðum mínum að hæstv. barnamálaráðherra. Það eru 2.000 munaðarlaus börn sem Pólland mun taka á móti og opna faðminn fyrir. Það eru 100 munaðarlaus börn að fara til Ísraels. Það eru þúsundir munaðarlausra barna núna á flótta í Úkraínu. Ég vil hvetja hæstv. barnamálaráðherra til að sýna frumkvæði og það afgerandi og opna faðminn þannig að þessi börn geti komið hingað í öruggt skjól. Við verðum þannig að gera okkar til að tryggja að börnin geti lifað í öryggi.