152. löggjafarþing — 48. fundur,  8. mars 2022.

störf þingsins.

[13:58]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegi forseti. Síðustu vikur hefur færð á landinu verið mörgum erfið. Við heyrum fréttir af því nú síðast í gær að fatlað fólk sem nú þegar glímir við erfitt aðgengi almennt, meira að segja þegar veðrið er hvað best, hefur þurft að hætta við læknisheimsóknir og að sækja aðra grunnþjónustu þar sem erfitt hefur verið að komast úr húsi. Nú gerum við ríkar kröfur til framkvæmdaraðila um að hanna skuli og byggja á grundvelli algildrar hönnunar. Það þýðir einfaldlega að byggingar og aðkomu að þeim skuli nýtast öllum. Í ljósi færðar á landinu er vert að benda á að aðgengi að samfélaginu má ekki binda við veðráttu. Aðgengi þarf einnig að vera tryggt að vetri til þegar snjó kyngir niður og hefur áhrif á færð. Í þessu sambandi má nefna að innan NATA, bandarísku löggjafarinnar um bann á mismunun á grundvelli fötlunar, er að finna sérstakt ákvæði sem krefur bæði opinbera aðila og einkaaðila um að gera viðeigandi ráðstafanir til að göngustígar, bílastæði, inngangar og almenningssamgöngur séu aðgengilegar fötluðu fólki líka þegar snjór yfir öllu. Þar má m.a. finna ákvæði eins og að snjór skuli hreinsaður af bílastæðum, að ryðja þurfi kantsteinsrampa og að aldrei megi hlaða snjó í stæði fyrir fatlaða. Einnig er þarna að finna að gangstéttir og gangbrautir skuli vera stöðugt aðgengilegar og allar inn- og útgönguleiðir verði að vera snjólausar og að tryggja þurfi öruggan og greiðan aðgang að og úr byggingum. Þarna er auðvitað að finna ýmislegt meira og annað en ég held að öllum sem hér eru inni þyki þetta nokkuð sjálfsagt. En þetta er bara ekki alveg nógu gott hér og þarf að bæta. Með sambærilegri löggjöf og þeirri bandarísku sem ég hef nefnt hér gætu opnast kæruleiðir fyrir fatlað fólk, telji það að því sé mismunað í aðgengi vegna athafnaleysis við að ryðja snjó.

Virðulegi forseti. Slík löggjöf væri mörgum til bóta og myndi stuðla að frumkvæði hins opinbera og einkaaðila við að tryggja aðgengi fyrir alla í öllum veðrum og aðstæðum allt árið um kring.